Icelandair sagði Ólöfu Helgu upp sem hlaðmanni á Reykjavíkurflugvelli í ágúst í fyrra. Alþýðusamband Íslands höfðaði mál fyrir félagsdómi á þeim forsendum að uppsögnin hefði verið ólögleg. Ólöf Helga hefði átt að njóta verndar sem trúnaðarmaður.
Í dómnum kemur fram að ágreiningslaust hafi verið að ekki hafi farið fram kosninga á trúnaðarmanni á vinnustaðnum eftir að kjörtímabili Ólafar Helgu lauk í mars. Stéttarfélag hennar, Efling, hefði heldur ekki tilnefnt hana án kosninga eða komið upplýsingum um val hennar til áframhaldandi starfa sem trúnaðarmaður á framfæri við fyrirtækið. Því hafi hún ekki notið verndar fyrir uppsögn.
Sólveig Anna segist í samtali við Vísi harma niðurstöðuna. Hún óttast þó ekki að hún hafi víðtækari áhrif fyrir trúnaðarmenn á vinnustöðum.
Kennir hún fyrrverandi stjórnanda og starfsmanni Eflingar sem höfðu það sem meginverkefni að halda utan um kjör trúnaðarmanna og koma upplýsingum um það á framfæri við atvinnurekendur um að kosning Ólafar Helgu hafi ekki verið endurnýjuð.
„Þetta fólk sinnti ekki þessu starfi sínu. Það er auðvitað bara mjög miður,“ segir Sólveig Anna.
Þessi mál hafi síðan þá verið tekin föstum tökum og séu nú komin í eðlilegt horf.
„Afglöp eins og þessi sem þetta háttvirta starfsfólk hér innanhúss bar ábyrgð á verða ekki endurtekin. Þetta fólk vinnur ekki lengur hjá þessu félagi. Þessi mál eru núna á góðum, réttum og eðlilegum stað,“ segir hún.
„Háttlaunaður stjórnandi“ og undirmaður sinntu ekki starfi sínu
Spurð að því hvort að mál Ólafar Helgu hafi þannig tapast á mistökum Eflingar segir Sólveig Anna að blaðamaður geti lagt út af orðum sínum eins og hann vilji.
„Ég auðvitað harma það að þetta sé niðurstaðan. Þetta var svo sannarlega ekki sú niðurstaða sem við óskuðum eftir og börðumst fyrir. En staðreyndin er sú að kosning hennar var ekki endurnýjuð og ábyrgð á því verkefni var hér hjá háttlaunuðum stjórnanda og undirmanni þess stjórnanda. Þær manneskjur sinntu ekki þessum störfum sínum, jafnvel þó að þetta sé augljóslega eitt af því mikilvægasta sem eigi að gera,“ ítrekar Sólveig Anna.
Sólveig Anna var formaður Eflingar þegar afglöpin sem hún lýsir áttu sér stað.
„Þetta verkefni var náttúrulega ekki á mínu borði, ekki það að ég sé að reyna að fría mig ábyrgð. Ég reyni aldrei að gera það, ekki í þessu né öðru,“ segir hún.
Stormasamt hefur verið innan Eflingar undanfarin misseri. Sólveig Anna sagði af sér formennsku síðasta haust í kjölfar ólgu á skrifstofu stéttarfélagsins. Starfsfólk sakaði hana meðal annars um að halda „aftökulista“. Sakaði hún starfsfólkið um að hrekja sig úr embætti.
Þær Sólveig Anna og Ólöf Helga hafa einnig eldað grátt silfur saman og tilheyrt ólíkum fylkingum í deilunum innan Eflingar. Ólöf Helga tapaði formannsslag við Sólveigu Önnu í Eflingu síðasta vetur. Gagnrýndi hún harðlega hópuppsögn Sólveigar Önnu á starfsfólki á skrifstofu Eflingar í kjölfarið.
Eftir að þing Alþýðusambandsins sprakk í loft upp þegar Sólveig Anna og formenn VR og Starfsgreinasambandsins gengu út af því sakaði Sólveig Anna Ólöfu Helgu um að vera „veruleikafirrta“ og „valdasjúka“.