Sport

Dagskráin í dag: Botnslagur í Subway-deildinni, sænski boltinn, golf og rafíþróttir

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Þór Þorlákshöfn og KR hafa samtals unnið sjö af seinustu átta Íslandsmeistaratitlum, en liðin mætast í botnslag Subway-deildarinnar í kvöld.
Þór Þorlákshöfn og KR hafa samtals unnið sjö af seinustu átta Íslandsmeistaratitlum, en liðin mætast í botnslag Subway-deildarinnar í kvöld. Vísir/Vilhelm

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á sjö beinar útsendingar úr hinum ýmsu íþróttum á þessum ágæta föstudegi þar sem allir ættu að geta fundir eitthvað við sitt hæfi.

Við hefjum leik úti á golfvelli þegar annar dagur Portugal Masters á DP World Tour hefst klukkan 12:00 á Stöð 2 Sport 5 áður en Bermuda Championship á PGA-mótaröðinni tekur við á sömu rás klukkan 17:30.

Þá er einn leikur í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á dagskrá klukkan 16:55 þegar Íslendingalið Kristianstad heimsækir Linköping á Stöð 2 Sport 2.

Subway-deild karla í körfubolta er á sínum stað í kvöld, en klukkan 18:05 hefst bein útsending frá viðureign Þórs frá Þorlákshöfn og KR á Stöð 2 Sport. Þessi tvö lið hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta samtals í sjö af seinustu átta skiptum, en liðin eru nú bæði án stiga eftir þrjár umferðir.

Klukkan 20:00 færum við okkur svo yfir til Hafnarfjarðar þar sem Haukar taka á móti ríkjandi Íslandsmeisturum Vals á Stöð 2 Sport áður en Körfuboltakvöld fer yfir alla leiki fjórðu umferðar.

Arena-deildin lætur sig ekki vanta, en bein útsending frá henni hefst klukkan 19:30 á Stöð 2 eSport.

https://stod2.is/framundan-i-beinni/




Fleiri fréttir

Sjá meira


×