Lífið

Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í bráð

Elísabet Hanna skrifar
Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í bráð.
Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í bráð. Getty/Amy Sussman

Söngkonan Taylor Swift boðar tónleikaferðalag í náinni framtíð í viðtali Graham Norton. Hún gaf nýlega út plötuna Midnight sem sló öll met á Spotify og varð mest spilaða platan á einum degi. Myndband við eitt laganna á plötunni hefur þó verið umdeilt og talið ýta undir fitufordóma.

Það mun gerast

„Við gerum það fljótlega. Það mun gerast,“ sagði hún aðspurð um tónleikaferðalag. Eftir að platan kom út á miðnætti gaf hún út aðra útgáfu af plötunni þremur klukkustundum síðar, með sjö auka lögum. Ætla má að þau lög fái einnig að óma á komandi tónleikum. Í viðtalinu sagði hún að tónleikaferðalagið verði stórkostlegt þegar þar að kemur.

Í viðtalinu sagðist hún vera gríðarlega þakklát aðdáendum sínum fyrir viðtökurnar á plötunni.

Laura Dern illa stjúpmóðirin

Taylor hefur nú þegar gefið út tvö myndbönd fyrir lög af plötunni sem hafa vakið mikið umtal. Í öðru þeirra, fyrir lagið Bejeweled, fara stjörnurnar Laura Dern, Haim systurnar og Dita Von Teese með hlutverk. Þema myndbandsins er Öskubuska þar sem söngkonan sjálf leikur aðalpersónuna.

Breytti Anti-Hero myndbandinu

Hitt lagið sem er komið með tónlistarmyndband er Anti-Hero. Taylor skrifaði það sjálf og leikstýrði. Eftir að myndbandið kom út varð eitt atriði þess umdeilt. 

Myndbrotið sem um ræðir sýndi söngkonuna stíga upp á vigt og talan sem kom upp á vigtinni var einfaldlega „Feit.“ Netverjar sögðu orðin á vigtinni ýta undir fitufordóma þar sem hún hafði sagt að þema myndbandsins væru hennar matraðahugsanir. 

Söngkonan hefur áður opnað sig um það að hafa átt erfitt samband við mat í fortíðinni og í heimildarmyndinni Miss Americana talaði hún um að hafa svelt sig á ákveðnum tíma í lífinu. 

Taylor hlustaði á gagnrýnis raddirnar sem töldu það ýta undir fitufordóma að það væri martröð að fá orðið feit upp á vigt. Nú hefur atriðinu verið breytt þar sem engin tala eða niðurstaða er sýnd. Leikkonan Whoopy Goldberg kom Taylor þó til varnar og sagði að söngkonan mætti hafa sínar tilfinningar og sinn ótta.


Tengdar fréttir

Mið­­nætur­­söngvar Taylor Swift opin­bera þrá­hugsanir og drauma

Ný plata Taylor Swift „Midnights“ birtist á helstu tónlistarveitum í nótt. Platan er stútfull af nýjum lögum, nánar til tekið tuttugu talsins. Platan einkennist af einskonar rafpoppi og er uppfull af einstakri textasmíð Swift sem aðdáendur og aðrir áhugasamir ættu að geta tengt við.

Taylor Swift vann bikarinn fyrir besta tón­listar­mynd­bandið

Tónlistarkonan Taylor Swift vann til tveggja verðlauna á VMA verðlaunahátíðinni í gær. Annars vegar vann hún verðlaun fyrir besta tónlistarmyndbandið og fyrir besta langa tónlistarmyndbandið fyrir myndbandið með laginu All Too Well (10 Minute Version). 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.