Lífið

Stemning í opnun á nýrri og bættri verslun Kölska

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá opnunarviðburði Kölska.
Frá opnunarviðburði Kölska.

Það var mikil stemmning í opnunarpartýi Kölska þegar ný og glæsileg herrafataverslun opnaði í Síðumúla 31 um helgina. Kölski sérhæfir sig í fínni herrafatnaði og þá aðallega sérssniðnum jakkafötum.

Ný og endurbætt vefverslun fór svo í loftið á sama tíma og opnunarpartý var haldið. Í nýju versluninni eru Michelsen úrsmiðir með lítið útibú og er Gentlemens Tonic með gott úrval af herrasnyrtivörum. Strákarnir tóku við rýminu í vor og var farið í að rífa allt út og endurskipuleggja verslunina. 

Tómas Sjöberg og Hjörleifur, stoltir með nýju verslunina.

„Hún er sérstaklega sniðin fyrir herramenn en sérsmíðaður bar er inni á staðnum. Þar geta menn sest niður í „chesterfield-loungið“ og sötrað á góðum drykkjum í boði Vínnes meðan þeir bíða eftir tímanum sínum, já eða meðan þeir hanna sín eigin jakkaföt. Vanalega tekur þrjár til fimm vikur að fá föt afhent og því fer hver að verða síðastur að bóka sinn tíma í mælingu fyrir jólin,“ segir Hjörleifur Davíðsson.

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar vel valdar myndir frá viðburðinum. 

Guðrún Péturs og Hanna Birna
Hera og Ásgeir Kolbeins
Gummi Kíró og Michelsen bræður
Tómas, Haukur og Hjölli
Bylgja, Aldís og Inga Lára
Peyjarnir fá uppstoppaðan lunda úr Suðurey frá Davíð í Tölvun
Hjalti Viktors og Anna Lind
Gunnar Steinn, Bergþóra og Eyrún
Guðmundur Huginn skipstjóri, Tómas í Kölska og Jón Arnór fyrrum körfuboltakappi.
Hera, Elínborg og Anna Lind
Upptekinn Axel Birgis úr Brodies
Halldór Árna að ná í Jakkafötin sín fyrir slútt nýkrýndra Íslandsmeistara, Breiðablik
Lúðvík og Aðalheiður
Nanna, Tinna Mjöll og Jón Þór
Tómas, Gugga, Þröstur og Kolbeinn
Ársæll Ottó og Viðar Engilberts ræða við Magnús í loungeinu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×