Bíó og sjónvarp

Ný stikla: Pandóra hefur aldrei verið glæsilegri

Samúel Karl Ólason skrifar
BeFunky-collage

Framleiðendur Avatar kvikmyndanna hafa nú loks birt fulla stiklu fyrir næstu myndina í seríunni. Hún heitir Way of Water og og fjallar um Jake, Neytiri, börn þeirra og baráttu íbúa Pandora gegn mönnum.

Þetta er önnur myndin af X mörgum sem James Cameron ætlar að gera úr söguheimi Avatar og gerist hún rúmum áratug eftir fyrri myndina, sem frumsýnd var árið 2009. Í henni snýr ofurstinn Miles Quaritch, sem leikinn er af Stephen Lang, aftur frá dauðum og virðist hann hafa verið klónaður sem Na'vi.

Hann mun berjast við fjölskylduna bláu í nýjum hluta Pandóru, reikisstjörnunnar þar sem myndirnar gerast.

Stiklan sem birt var í dag sýnir börn Jake (Sam Worthington) og Neytiri (Zoe Saldaña) í fyrsta sinn en það eru þau Neteyam (Jamie Flatters), Lo'ak (Britain Dalton), Tuktirey (Trinity Bliss) og Kiri (Sigourney Weaver, einhvern veginn).

Kvikmyndin verður frumsýnd þann 16. desember. Upprunalega átti að frumsýna myndina árið 2014 en framleiðslan hefur undið verulega upp á sig.

Aðrir sem leika í myndinni eru Kate Winslet, Michelle Yeoh, Cliff Curtis, Joel David Moore, Edie Falco og Jameine Clement.


Tengdar fréttir

Fyrsta stikla næstu Avatar loksins birt

Eftir margra ára framleiðslu er loksins búið að birta fyrstu stiklu næstu Avatar-kvikmyndarinnar. Hún heitir Avatar: The Way of Water og fjallar um Jake, Neytiri, börn þeirra og baráttu íbúa Pandora gegn mönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.