Í fréttum Stöðvar 2 voru Fljótin í Skagafirði heimsótt. Frá því nýr skóli reis að Sólgörðum árið 1985 hafði gamla skólahúsið drabbast niður allt þar til Ólöf Ýrr og eiginmaður hennar, Arnar Þór Árnason, hófu að gera það upp árið 2017, eins og Ólöf lýsti þegar við hittum hana á staðnum í byrjun septembermánaðar.

„Það þurfti talsvert mikið að gera. Það þurfti að klæða það að utan, skipta út öllum gluggum, setja nýtt þak og gera allar innréttingar og allt. Og lukum því og opnuðum hér 13. mars 2020 sem, eins og ég hef sagt, var líklega besti dagur mannkynssögunnar til að opna hótel,“ segir Ólöf og hlær.
Já, það var sama dag og ríkisstjórnin tilkynnti um víðtækt samkomubann vegna covid-faraldurs. Þau ákváðu að þrauka með tilbúið gistirými fyrir fimmtán manns í hóteli sem kennt er við Sótahnjúk, strýtulagað fjall sem blasir við frá Sólgörðum.

„Eins og þú manst, þá var alltaf.. „þetta verður nú búið í næsta mánuði“ - maður er svona eiginlega leiddur áfram og er kominn með allskonar skuldbindingar sem maður getur ekki hætt við. Þannig að þetta var mjög áhugavert fyrsta rekstrarár, getum við sagt.
En það kannski góða í því var að það neyddi mann svolítið til þess að hugsa út fyrir það sem við höfðum kannski hugsað okkur fyrst,“ segir Ólöf Ýrr.
Þau fengu sér ferðaskrifstofuleyfi og ákváðu að höfða til íslenskra hópa með pakkaferðum um náttúru Fljótanna, jafnt sumar sem vetur; buðu upp á gönguferðir, kajakferðir, hjólaferðir og gönguskíðaferðir.
„Og svo þar að auki þá er auðvitað fjallaskíðamennskan, sem er að koma sterk inn.“

Sundlaugina við hliðina nýta þau í fljótandi djúpslökun fyrir gestina. Þegar við spyrjum hvort það séu ekki aðallega konur sem stundi slíkt svarar Ólöf því ákveðið neitandi. Karlarnir komi líka í flotið.
„Þeir einmitt flissa og skríkja þarna fyrst. Eru voða meðvitaðir. Svo þegar þeir byrja að fljóta þá bara fljóta þeir. Þeir bara sofna og þeir slaka allir og maður þarf bara að hala þá inn þarna eftirá oft. Þarna náið þið loksins að teygja úr ykkur svona almennilega,“ segir eigandi Sóta Summits og fyrrverandi ferðamálastjóri.
Ítarlegri umfjöllun er í þættinum Um land allt, sem nálgast má á streymisveitunni Stöð 2+.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: