„Ég hef fengið ,,hótunar“ símtöl frá jakkafataklæddum mönnum innan flokksins þar af einum háttsettum sem fór langt út fyrir sitt umboð í ljósi embætti síns,“ skrifar Unnur Berglind í pistli á Facebook þar sem hún lýsir því að síðustu dagar hafi reynst „sjálfstæðishjarta hennar“ erfiðir að undanförnu.
Eins og þeir sem fylgjast með stjórnmálum vita stendur nú yfir kosningabarátta þar sem tekist er á um formannsstólinn í Sjálfstæðisflokknum. Kosið verður milli þeirra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar og Bjarna næstkomandi laugardag á Landsfundi flokksins. Fyrir liggur að verulega er farið að hitna í þeim slag. Unnur styður Guðlaug Þór í þeim slag. Hún lýsir því að að sér hafi verið sótt af mönnum Bjarna að undanförnu og að í þeim efnum hafi menn ekki skirrst við að misnota aðstöðu sína.
„Ég var boðuð í yfirheyrslur í bakherbergi í Valhöll í fyrrakvöld fyrir nefnd sem ágætur (eða ekki) þekktur lögmaður er í forsvari. Þar var talað niður til mín og ég lítilsvirt. Það var farið með mig eins og sakamenn í sakamáli þá er ég að vísa einnig í ítrekuð yfirheyrslusímtöl. Sakarefnið er ekki alveg á hreinu því það er ekki verið að saka mig beint um neitt ... en .....“ skrifar Unnur.
Yfirheyrð sem sakamaður um Landsfundarfulltrúa úr Kópavogi
Unnur Berglind hefur verið í stjórn Sjálfstæðisfélags Kópavogs í 5 ár og er nú formaður. Hún skilaði inn listum þeirra Sjálfstæðismanna í Kópavogi sem ætla á landsfund flokksins næstu helgi. En samkvæmt heimildum Vísis hefur verið skipuð sérleg nefnd innan flokksins sem fer yfir kjörgögn og lista yfir Landsfundarfulltrúa. Eftir því sem Vísir kemst næst voru þrír lögfræðingar á umræddum fundi, þeir Davíð Þorláksson og Brynjar Níelsson, en hann er formaður kjörbréfanefndarinnar, auk lögmannsins Arnars Þórs Stefánssonar. Davíð vill ekki tjá sig um það hvort hann hafi verið á fundi með Unni en staðfestir að hann sé í kjörbréfanefnd flokksins.
Unnur segist hafa tekið saman lista yfir nöfn þeirra sem óskuðu eftir sæti og fengu allir sem þess óskuðu innan gefinna tímamarka.

„En samt á ég að hafa gert eitthvað af mér ....en samt ekki.... og farið með mig eins og sakamann af því að stuðningsmenn annars frambjóðandans eru að fara af taugum yfir því að nú hefur Guðlaugur Þór ákveðið að bjóða sig fram. Erum við ekki flokkur lýðræðisins ? Er þetta Rússland á tímum kalda stríðsins ? Hótanir eins og að framboð Guðlaugs Þór kljúfi flokkinn, valdi stjórnarslitum og allt fari í kaldan kol.“
Telur vafasamar aðferðir til þess fallnar að kljúfa flokkinn
Unnur Berglind segir stuðningsmenn annars frambjóðandans, og ætti enginn að velkjast í vafa um stuðningsmenn hvers í ljósi þess að hún ætlar sér að kjósa Guðlaug Þór, telji vænlegast að ráðast gegn grasrót flokksins, að fólki sem vinni að heilindum í sjálfboðastarfi. Og hún spyr hvort það sé ekki til þess fallið að kljúfa flokkinn?
„Því verð ég að segja að þrátt fyrir að hafa verið búin að einsetja mér að taka ekki opinbera afstöðu þá gerði ég það hér með. Ég get ekki annað – það sem ég hef upplifað síðustu daga er svo miklu verra en kosningaslagur á milli aðila,“ skrifar Unnur Berglind og segist ætla að kjósa Guðlaug Þór. Hún vilji lýðræðislegan flokk sem vinni fyrir fólkið í landinu, ekki bara útvalda.
Vísir náði ekki í Unni Berglindi vegna þeirra ásakana sem hún hefur sett fram.