Fótbolti

Zlatan skammar Mbappé: „Ert ekki stærri en PSG“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic gefur framkomu og hegðun Kylians Mbappé ekki „like“.
Zlatan Ibrahimovic gefur framkomu og hegðun Kylians Mbappé ekki „like“. getty/Piero Cruciatti

Einhver myndi segja að það kæmi kannski úr hörðustu átt að Zlatan Ibrahimovic gagnrýndi fótboltamann fyrir að vera með of stórt egó. En Svíinn setti það ekki fyrir sig þegar hann skammaði Kylian Mbappé fyrir hrokafulla hegðun.

Mbappé skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Paris Saint-Germain í maí. Talið er samningurinn sé 540 milljóna punda virði. Auk þess á Mbappé að geta haft áhrif á ákvarðanir sem PSG tekur, til dæmis varðandi leikmannakaup. 

Þrátt fyrir þetta ku Mbappé ekki vera sáttur hjá PSG og vill yfirgefa félagið. Zlatan skilur ekki hvað franska landsliðsmanninum gengur til.

„Mbappé er kominn í stöðu þar sem hann er mikilvægari en félagið. En þú ættir aldrei að gera stærri en félag því þú ert það ekki,“ sagði Zlatan við Canal+ í Frakklandi.

Zlatan fór mikinn í viðtalinu og sagði ekkert varið í frönsku úrvalsdeildina síðan hann yfirgaf landið 2016, ekki einu sinni þótt Mbappé, Neymar og Lionel Messi leiki allir með PSG.

„Síðan ég fór frá Frakklandi hefur allt hrunið. Það er ekkert til að tala um lengur,“ sagði Zlatan. „Frakkland þarfnast mín. Ég þarf Frakkland ekki. Það hjálpar ekki að hafa Mbappé, Neymar og Messi.“

Þótt það gusti um Mbappé utan vallar stendur hann sig inni á vellinum og hefur skorað átján mörk í átján leikjum í öllum keppnum á tímabilinu. Eitt þeirra kom í 1-2 sigri PSG á Juventus í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær.

PSG á eftir að leika tvo leiki áður en deildir heimsins fara í frí vegna HM í Katar. PSG mætir Lorient á útivelli á sunnudaginn og tekur svo á móti Auxerre um þarnæstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×