Merki um að heimilin séu að snúa aftur í verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóða
![Heimilin eru farin að taka verðtryggð íbúðalán í meira mæli hjá bæði lífeyrissjóðum og bönkunum samhliða hækkandi vaxtastigi.](https://www.visir.is/i/3317D54CF12C02D9C7B13FB85C946AA9C52658CBCF9CE1C1F99D05D6E17453B4_713x0.jpg)
Ný verðtryggð íbúðalán lífeyrissjóðanna voru nánast jafn mikil og upp- og umframgreiðslur þeirra í september en sjóðsfélagar höfðu áður greitt upp slík lán samfellt frá því á vormánuðum ársins 2020. Er þessi viðsnúningur í samræmi við þá útlánaþróun sem hefur sést hjá bönkunum á allra síðustu mánuðum samtímis hækkandi vaxtastigi en Seðlabankastjóri hefur sagst hafa áhyggjur af því að heimilin færi sig aftur yfir í verðtryggð lán.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/6B2A11CF459ABD877AE5B77F02CA41A1B69106E764CF6DF29A15644AC641D7A9_308x200.jpg)
Bankarnir hafa fimmfaldað útlán sín til fyrirtækja milli ára
Eftir vísbendingar um að það væri farið að hægja á miklum útlánavexti viðskiptabankanna til atvinnufyrirtækja í ágúst þá sýna nýjar tölur Seðlabankans að hann tók við sér kröftuglega á ný í liðnum mánuði. Á fyrstu þremur fjórðungum þessa árs þá nema ný útlán bankanna til fyrirtækja samtals um 213 milljörðum króna borið saman við aðeins 44 milljarða á sama tímabili fyrir ári.