Tekur við formennsku af Le Pen Atli Ísleifsson skrifar 7. nóvember 2022 08:49 Marine Le Pen og Jordan Bardella á landsfundi Rassemblement National um helgina. AP Hinn 27 ára Jordan Bardella var í gær kjörinn formaður hægri þjóðernisflokksins Rassemblement National, flokksins sem áður gekk undir nafninu Þjóðfylkingin (f. Front National). Hann tekur við formennskunni af Marine Le Pen sem hyggst einbeita sér að störfum flokksins á franska þinginu.
Þetta er í fyrsta sinn í fimmtíu ára sögu flokksins þar sem leiðtogi flokksins ber ekki eftirnafnið Le Pen, en Marine Le Pen tók við formennsku af föður sínum, Jean-Marie Le Pen árið 2011. Í frétt BBC segir að ekki sé reiknað með að formannsskiptin muni hafa mikil áhrif á stefnu flokksins. Le Pen sé enn valdamesta manneskjan í flokknum og eru allar líkur á að hún verði forsetaframbjóðandi flokksins í kosningunum sem munu fara fram árið 2027. Flokkurinn náði 89 þingsætum í þingkosningunum í Frakklandi í sumar. Bardella er af ítölskum uppruna og var alinn upp í úthverfi Parísarborgar. Hann gekk ungur til liðs við flokkinn og hefur hann verið fljótur af klífa þar valdastigann. Hann hefur verið starfandi formaður flokksins frá því á síðasta ári þegar Le Pen hóf kosningabaráttu sína fyrir forsetakosningarnar sem fram fóru síðasta vor. Emmanuel Macton náði þar endurkjöri sem forseti Frakklands.
Frakkland Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Innlent Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Innlent Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Innlent Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Innlent Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Innlent Atburðarás gærdagsins í myndum Innlent Vaktin: Totur farnar að teygja sig til norðurs Innlent Fleiri fréttir Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Høiby í vikulangt gæsluvarðhald Fara fram á tveggja vikna gæsluvarðhald yfir stjúpsyninum NATO tryggi lykilinnviði eftir ætluð spellvirki í Eystrasalti Hlaut dauðadóm fyrir að eitra fyrir fjórtán vinum með blásýru Hótar að fella stjórnina í skugga „pólitísks dauðadóms“ Mafíuforingi sækist eftir þingsæti í Dyflinni Heitir peningaverðlaunum og lausn þeim sem frelsa gísla Fyrsta trans konan á þingi sætir aðför af hálfu kollega sinna Sjá meira