Lífið

Stjörnulífið: „Ég verð að fara að heyra í þeim aftur og láta þá laga aðeins í hornunum“

Elísabet Hanna og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga.
Stjörnulífið er liður á Lífinu á Vísi þar sem farið er yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera síðustu daga. Skjáskot/Instagram

Ferðalög, djammið og bónorð í París vöktu athygli á samfélagsmiðlum í liðinni viku. Feðradagurinn tók svo yfir samfélagsmiðlana í gær. Instagram var bókstaflega yfirfullt af fallegum skilaboðum til þeirra sem gefa sig alla í stóra hlutverkið. 

Leikkonan Þórdís Björk er alsæl með söngvarann Júlí Heiðar og allan þann her af góðum pöbbum sem eru í hennar lífi.

Förðunarfræðingurinn Erna Hrund sendir Jóni Kristófer fallegar kveðjur á feðradaginn.

Áhrifavaldurinn Fanney Dóra og dóttir hennar Thalía eru ánægðar með Aron Ólafsson.

Áslaug Arna, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, tók þátt í stærstu tækniráðstefnu kvenna í Asíu.

Fjölmiðlakonan Viktoría Hermannsdóttir og eiginmaður hennar Sóli Hólm fóru saman til Stokkhólms áður en Jóli Hólm tekur við keflinu næstu vikurnar.

Áhrifavaldurinn Birta Hlín Sig­urðardótt­ir og Helgi Jónsson trúlofuðu sig í París.

Áhrifavaldurinn Guðrún Veiga er komin aftur á Instagram eftir að reikningurinn hennar var hakkaður.

Fjölmiðlakonan Berglind Pétursdóttir kann sitt hvað í eldhúsinu.

Söngkonan GDRN birti glæsilega sjálfu.

Felix Bergsson og Gunni Helga voru með menningarkvöld hjá Fjölbrautaskóla Norðvesturlands á Sauðárkróki.

Rithöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir voru saman á pallborði ásamt rithöfundinum David Walliams.

Söngvarinn Friðrik Ómar ætlar að kalla málarana aftur til sín og fá þá til þess að mála margar umferðir. Hann ætlar sérstaklega að fá þá til þess að „laga aðeins í hornunum.“

Leikkonan Aníta Briem kynnir myndina Berdreymi í Slóveníu en myndin er framlag Íslands til Óskarsins í ár. 

Bræðurnir Beggi Ólafs og Þorgrímur Smári hafa unnið saman að því að gefa út bók og spil. 

Söngkonan Bríet var ekki að spara skartið.

Leikkonan Kristín Pétursdóttir fagnaði þrjátíu árum með pomp og prakt á Petersen svítunni.

Athafnakonan Birgitta Líf og kærastinn hennar Enok Jónsson njóta lífsins á Bali.

Raunveruleikastjarnan Ástrós Trausta gerði vel við sig með fallegu kúluna sína.

Fyrrum fótboltamaðurinn Rúrik Gíslason skellti sér á bretti og er spenntur að deila reynslunni með öðrum.

Raunveruleika- og hlaðvarpsstjörnurnar Sunneva Einars, Jóhanna Helga og Birta Líf fóru í menningarferð til Parísar þar sem þær skína jafn skært og Eiffel turninn sjálfur.

Athafnakonan Tanja Ýr sólar sig á snekkju.

Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk er í Ungverjalandi með ástinni sinni Steven Lennon.

Vinkonurnar Manuela Ósk og Inga Tinna Sig­urðardótt­ir skemmtu sér vel í Gamla bíó.

Listakonan Saga Sig og Villi Naglbítur fóru í babymoon.

Kynn­ing­ar­stýra UN Women, María Rut Krist­ins­dótt­ir segir eiginkonu sína vera skilgreininguna á fegurð en Ingileif Friðriksdóttir gengur með þeirra þriðja barn.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Hrekkjavaka, Grease og gleði

Gerviblóð, dýraeyru og Íslendingar klæddir sem Hollywood stjörnur einkenndu hrekkjavöku helgina sem var að líða. Grease tónleikarnir fóru loksins fram í Laugardalshöllinni eftir að tilkynnt var um þá árið 2020.

Stjörnulífið: Góðverk, þrítugsafmæli og Plóma

Brúðkaup og barneignir voru áberandi á samfélagsmiðlum en glæsilegt þrítugsafmæli yfirtók Instagram í miðri vikunni sem leið. Þar voru nokkrar af stærstu samfélagsmiðlastjörnum Íslands samankomnar. Miðillinn hefur einnig verið nýttur til góðs og fór af stað söfnun í Asíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.