Lífið

Pete Davidson og Emily Ratajkowski eru að hittast

Elísabet Hanna skrifar
Grínistinn Pete Davidson og fyrirsætan Emily Ratajkowski gætu verið nýjasta par Hollywood.
Grínistinn Pete Davidson og fyrirsætan Emily Ratajkowski gætu verið nýjasta par Hollywood. Getty/Frazer Harrison/Cindy Ord/MG21

Grínistinn Pete Davidson og fyrirsætan Emily Ratajkowski eru að njóta þess að kynnast og eyða tíma saman samkvæmt heimildum Us Weekly.

„Pete og Emily hafa verið að tala saman í nokkra mánuði,“ segir heimildin. „Hann lætur hana hlæja og elskar hversu vitur hún er.“ Samkvæmt heimildinni kynntust þau í gegnum sameiginlega vini og eru að fara hægt í hlutina og njóta þess að kynnast.

Fyrrum kærustur Pete eru meðal annars Kim Kardashian, Ariana Grande, Kaia Gerber, Phoebe Dynevor and Kate Beckinsale. Síðast hætti hann í sambandi með Kim í ágúst á þessu ári eftir tíu mánuði saman. Á meðan á sambandinu stóð varð hann fyrir miklu áreiti frá rapparanum Kanye West, fyrrum eiginmanni Kim.

Emily skildi fyrr á árinu við Sebastian Bear-McClard eftir að hafa verið gift honum síðan 2018. Hann var henni ótrúr en saman eiga þau einn dreng. Síðan þá hefur hún sést á stefnumótum, meðal annars með Brad Pitt.


Tengdar fréttir

Brad Pitt og Emily Ratajkowski eyða tíma saman

Leikarinn Brad Pitt og fyrirsætan Emily Ratajkowski hafa verið að eyða tíma saman samkvæmt heimildum People. Heimildirnar segja þau þó ekki vera í sambandi og að óljóst sé hversu mikil alvara sé í samskiptunum. 

David­son orðinn vel merktur Kar­dashian fyrir lífs­tíð

Grínistinn Pete Davidson sýndi nýlega nýtt húðflúr tileinkað kærustu sinni Kim Kardashian. Þetta er ekki fyrsta húðflúrið sem hann fær sér tileinkað henni og má því segja að hann sé vel merktur - og það fyrir lífstíð.

Kastar öllu frá sér þegar Kim býður honum með sér í sturtu

Önnur þáttaröð raunveruleikaþáttanna The Kardashians er væntaleg á Hulu í lok september en í þáttunum er fylgst með lífi og leik fjölskyldumeðlima hinnar ofurfrægu Kardashian fjölskyldu sem fólk virðist bara ekki fá nóg af. 

Kanye biður Kim afsökunar

Kanye West hefur beðið fyrrverandi eiginkonu sína, Kim Kardashian, afsökunar á öllu því stressi sem hann hefur valdið henni. Hann segist geta borið erfiðleika sína með Kim saman við erfiðleika sína með Adidas.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.