Hvasst á suðvestanverðu landinu fram eftir degi Atli Ísleifsson skrifar 17. nóvember 2022 07:19 Milt er í veðri miðað við árstíma og má reikna með tveggja til níu stiga hita í dag. Vísir/Vilhelm Áfram halda suðaustlægar áttir hjá okkur með vætu og þá sérstaklega um landið suðaustanvert. Úrkomulítið verður hins vegar fyrir norðan.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Þar segir að í gær hafi verið stíf austanátt með suðurströndinni, en í dag dragi úr vindi þar. „Hins vegar hvessir á suðvestanverðu landinu og verður nokkuð hvasst þar fram eftir degi með skúrum. Seinni partinn dregur úr vindi og á morgun verður suðaustan 5-13 m/s á landinu með skúrum eða rigningu, úrkomumest suðaustantil og á Austfjörðum. Nokkuð milt er í veðri miðað við árstíma eða um 2 til 9 stig. Það lítur ekki út fyrir stórar breytingar hjá okkur um helgina, en spáð er suðaustanátt með vætu, sérstaklega suðaustantil, fram í næstu viku og hiti breytist lítið.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustan 5-13 m/s og skúrir, en rigning suðaustantil og á Austfjörðum, einkum í fyrstu. Skýjað með köflum fyrir norðan. Bætir heldur í vind suðvestantil undir kvöld. Hiti 2 til 8 stig. Á laugardag: Vaxandi austan- og suðaustanátt, 8-15 m/s síðdegis, en 13-20 sunnantil. Rigning suðaustan- og austanlands, annars þurrt að kalla. Hiti 0 til 7 stig, mildast með suðurströndinni. Á sunnudag og mánudag: Ákveðin suðaustan- og austanátt og dálítil væta af og til, en rigning suðaustanlands og á Austfjörðum. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Snýst í norðaustlæga átt með rigningu eða slyddu á Norður- og Austurlandi, en bjart að mestu suðvestantil. Kólnandi veður. Á miðvikudag: Útlit fyrir stífa norðaustanátt með rigningu eða slyddu í flestum landshlutum. Hiti um og yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Sagður hafa nauðgað konu fyrir níu árum Innlent Mættur í Samfylkinguna Innlent Ítalía tekur aftur upp agaviðurlög frá tíma Mussolini Erlent Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Innlent Ekkert gert til að gera nikótínpúða jafn óaðlaðandi og sígarettur Innlent Hefur þrisvar komið að 13 ára syni sínum meðvitundarlausum Innlent Matvælastofnun kærði tvo búfjáreigendur til lögreglu Innlent Færri ánægðir með Höllu en Guðna og Ólaf Ragnar Innlent Segir Vinstri græn ekki styðja frekari breytingar á útlendingalögum Innlent Hvers vegna er skiltið í Kúrlandi svo hátt uppi? Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag þokast suður Rigning eða slydda norðan- og austanlands Dregur úr vindi og ofankomu Svalt í veðri og gengur í blástur Útlit fyrir áframhaldandi rólegheit Milt veður en lægð nálgast Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Allt að 17 stig á Austurlandi Næsta lægð nálgast úr suðvestri Gular viðvaranir í hvassviðris Lægð nálgast landið í nótt og gular viðvaranir á morgun Rigning, slydda og jafnvel snjókoma norðaustanlands Gul viðvörun á Suður- og Suðausturlandi til hádegis Gular viðvaranir vegna storms sunnantil Um sjö stiga frost mældist í Eyjafirði í nótt Þurrt og bjart nokkuð víða Norðanáttum beint til landsins Von á 35 metrum á sekúndu í hviðum á Kjalarnesi Kalt, blautt og hvasst „Þetta er alvöru hret“ Snjókoma á Norðurlandi og ekki mælt með ferðalögum Gular og appelsínugular viðvaranir víða um land Búast við slyddu og snjókomu á fjallvegum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Hvessir aftur þegar líður á daginn Slær sums staðar í storm norðvestantil Lægð yfir landinu og gul viðvörun á Breiðafirði Bjartur dagur sunnantil og hiti að sextán stigum Spáð mildu veðri í dag Sunnanátt með rigningu en nokkuð hlýtt Sjá meira