„Þeir höfðu samband við mig frá Öldu og spurðu hvort ég vildi taka þátt í þessu. Mér fannst þetta bara mjög skemmtilegt og ég hef hún ekki gert jólalag í 25 ár,“ segir Helgi sem var gestur í Brennslunni í morgun.
Lagið samdi Helgi ásamt þeim Einari Lövdahl Gunnlaugssyni og Agli Jónssyni. Upptökustjórn og útsetningar voru í höndum Pálma Ragnars Ásgeirssonar. Textinn hefur að geyma grátbroslega jólasögu um ást og einmanaleika – og er í raun eins og opinskátt bréf frá manni sem verður meyr á aðventunni.
„Þetta höfðaði bara til mín. Mér fannst þetta svona skemmtileg lítil jólasaga sem á vel við. Ég gerði þetta síðan svona aðeins að mínu. Þannig small þetta bara og ég vona að þetta verði fólki til ánægju í jólaamstrinu,“ segir Helgi.
Á eitt vinsælasta jólalagið en er ekki jólabarn
Þrátt fyrir að Íslendingar hugsi gjarnan um Helga Björns í samhengi við jólin, segist hann sjálfur vera afar lítið jólabarn. Hann segir Ef ég nenni, lagið sem kom honum á jólakortið, ekki endilega hafa verið samið sem jólalag. Upprunalega lagið er ítölsk ballaða og í íslenska textanum er aðeins minnst á jólin einu sinni. Lagið var svo gefið út á plötunni Jólagestir 3 og þá var ekki aftur snúið.
Sjá einnig: Ítalskur höfundur stærsta jólasmells Íslendinga himinlifandi með viðtökurnar
„Ég gerði eitt lag í viðbót þarna á svipuðum tíma sem ég man nú ekki einu sinni hvað heitir. Það poppar svona aðeins upp á jólunum,“ segir Helgi sem á þá við lagið Jólastafrófið.
Kalkúnninn alltaf á sínum stað
Þegar hann er spurður hvort von sé á fleiri jólalögum frá honum er svarið einfalt: „Nei.“
Þrátt fyrir að Helgi sé lítið jólabarn segist hann þó njóta aðfangadagskvölds. Þá borðar hann kalkún í faðmi fjölskyldunnar.
„Það er svona hefð sem við byrjuðum með þegar við hættum að fara til foreldrana. Svo ætluðum við eitthvað að fara breyta því, þá tóku börnin bara fyrir það.“
Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Helga Björns í Brennslunni, þar sem hann var spurður spjörunum úr.