Drög lögð að framhaldi Verbúðarinnar Jakob Bjarnar skrifar 22. nóvember 2022 16:17 Björn Hlynur Haraldsson og Gísli Örn Garðarsson í hlutverkum sínum í Verbúðinni. Þeir eru nú að hefja vinnu við að skrifa handrit að næstu næstu seríu. aðsend Leikhópurinn Vesturport er að hefjasta handa við handritsskrif að framhaldi sjónvarpsþáttanna Verbúðinni.
Fá ef nokkur dæmi eru um aðrar eins athygli og vinsældir og þær sem Verbúðin naut þegar þættirnir voru til sýninga í lok árs 2021 og í byrjun þessa árs. Félagar í Vesturporti hafa ekkert viljað tjá sig hingað til um það hvort til standi að gera framhald en Rakel Garðarsdóttir upplýsir að svo verði í viðtali sem birtist á Vísi í morgun. En í viðtalinu lýsir hún því hvernig lífið á Ítalíu er en þar býr hún nú ásamt eiginmanni sínum Birni Hlyni Haraldssyni. „Mikið af vinnunni hans er í tölvu því nú er verið að skrifa handrit að næstu Verbúðarseríunni og hann er einn af þeim sem er að vinna í því. Fyrra handritið tók mörg ár í vinnslu. Þegar það koma upp verkefni þar sem hann þarf að fara og vera staðbundið til að leika, þá er það ekkert mál. Hann fer þá bara heim eða þangað sem verkefnið er,“ segir Rakel. Gísli Örn Garðarson, bróðir Rakelar, einn handritshöfunda og leikstjóri sjónvarpsþáttanna sagði á sínum tíma að þættirnir væru óður til 9. áratugarins; fjalla um vini sem búa vestur á fjörðum og fara í sjávarútvegsbransann árið 1983 þegar kvótakerfið er að verða til. „Við fylgjum því hvernig þau þróast samhliða því sem kvótkerfið er að festa sig í sessi á árunum 1983 til 1991. Það er tímaspan seríunnar,“ sagði Gísli Örn þá. Eftir því sem Vísir kemst næst er handritsgerðin á frumstigi en hugmyndin er sú að tekin verði upp þráðurinn þar sem frá var horfið í dramatískum þætti fyrstu þáttaraðar. Undir eru ýmsir dramatískir sögulegir atburðir, og þá líklegt að litið verði til einkavæðingar bankanna og vendinga á pólitíska sviðinu. Auk þeirra Björns Hlyns og Gísla Arnar verða sem fyrr Nína Dögg Filippusdóttir í handritsteyminu auk Mikaels Torfasonar rithöfundar.
Kvikmyndagerð á Íslandi Menning Tengdar fréttir Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis. 24. janúar 2022 07:00 Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Fleiri fréttir Tobey Maguire er á landinu Fyrsta stiklan úr Gladiator II Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira
Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis. 24. janúar 2022 07:00