Viðskipti innlent

Katla og Viðar til Aur­bjargar

Atli Ísleifsson skrifar
Katla Hlöðversdóttir og Viðar Engilbertsson.
Katla Hlöðversdóttir og Viðar Engilbertsson. Aðsend

Katla Hlöðversdóttir hefur verið ráðin sem þjónustu- og upplifunarstjóri og Viðar Engilbertsson sem markaðsstjóri hjá fjártæknifyrirtækinu Aurbjörgu.

Í tilkynningu kemur fram að Katla sé með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og hafi stundað meistaranám í verkefnastjórnun við sama skóla. Áður hafi Katla starfað sem markaðsstjóri hjá Skólamat.

„Katla er Keflvíkingur sem er búsett í Garðabæ og í sambúð með Arnari Þór Ingasyni. Hún eignaðist sitt fyrsta sjónvarp fyrir skömmu, en hún nýtur þess að lesa góðar bókmenntir sem hún hefur tekið fram yfir sjónvarpsáhorf. Þá er Katla mikill matgæðingur.

Viðar stundaði meistaranám í markaðsfræði- og alþjóðaviðskiptum og er einnig með meistaragráðu í líffræði frá Háskóla Íslands. Hann starfaði hjá Larsen Energy Branding, stýrði markaðsmálum hjá Skaginn 3X og hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi áður en hann gekk til liðs við Aurbjörgu.

Viðar er Skagamaður í húð og hár. Hann þykir lunkinn gítarleikari og lagasmiður, er keppnismaður í kraftlyftingum og hefur meðal annars lyft 255 kílóum í réttstöðulyftu og 150 kílóum í bekkpressu og einbeitir sér nú að því að hlaupa maraþon. Viðar er giftur Gyðu Björk Bergþórsdóttur og eiga þau þrjár stúlkur,“ segir í tilkynningunni. 

Aurbjörg er íslenskt fjártæknifyrirtæki sem hefur það að markmiði að auka fjármálalæsi, gagnsæi og aðstoða fólk við að taka upplýstar, góðar og skynsamlegar ákvarðanir tengdar fjármálum heimilisins.


Tengdar fréttir

Aur­björg að hluta gerður að á­skriftar­vef

Fjártæknivefurinn Aurbjörg hefur að hluta verið gerður að áskriftarvef á sama tíma og vefurinn hefur kynnt nýjar lausnir til leiks. Vefnum er ætlað að einfalda fólki að taka upplýstar fjárhagslegar ákvarðanir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×