Lífið

Prison Break stjarna nýr stjúp­faðir Mil­ey Cyrus

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Tish Cyrus og Dominic Purcell eru nýjasta parið í Hollywood.
Tish Cyrus og Dominic Purcell eru nýjasta parið í Hollywood. Getty/Kevin Mazur-Stephane Cardinale

Tish Cyrus, móðir tónlistarkonunnar Miley Cyrus, er komin í nýtt samband. Sá heppni er Prison Break leikarinn Dominic Purcell.

Foreldrar Miley Cyrus, þau Tish og Billy Ray, skildu í apríl á þessu ári eftir tuttugu og átta ára hjónaband. Þau höfðu sótt um skilnað tvisvar áður og ekki búið undir sama þaki í tvö ár.

Þakkar tímasetningu guðs

Nú hefur Tish hins vegar fundið ástina á ný í örmum leikarans Dominic Purcell. Parið opinberaði samband sitt með myndbirtingu á Instagram fyrir stuttu.

Á myndinni mátti sjá parið í faðmlögum. Stuttu seinna setti Tish inn textann: „Þegar kemur að tímasetningu guðs, mun allt vera í lagi“. Þá bætti hún því við að stundum hefði sér þótt erfitt að trúa þessari fullyrðingu en þetta væri svo sannarlega satt.

Tish Cyrus deildi þessum texta með fylgjendum sínum á Instagram stuttu eftir að hún setti inn mynd af sér og nýja kærastanum.instagram

Bæði komin í ný sambönd

Tish virðist því vera alsæl með nýja kærastann. Tish er 55 ára gömul og Dominic þremur árum yngri. Hann sló í gegn í þáttunum Prison Break, The Flash og Legends of Tomorrow. Þá fór hann með hlutverk Dracula í kvikmyndinni Blade: Trinity.

Eins og fram hefur komið á Vísi er Billy Ray einnig kominn í nýtt samband. Hann er trúlofaður ungu söngkonunni Firerose. Samband þeirra hefur vakið mikla athygli sökum aldursmunar á parinu. Billy Ray er sextíu og eins árs gamall. Nákvæmur aldur Firerose er ókunnur en hún er talin vera á þrítugsaldri.


Tengdar fréttir

Hamingju­óskum rignir yfir pabba Mil­ey Cyrus

Kántrýstjarnan Billy Ray Cyrus virðist vera tilbúinn að festa ráð sitt með ungu söngkonunni Firerose, ef marka má nýja mynd sem parið birti á Instagram í gær.

Faðir Miley Cyrus hefur fundið ástina á ný

Söngvarinn Billy Ray Cyrus, faðir Miley Cyrus, er kominn með kærustu. Kærastan er ástralska söngkonan Firerose. Það var í apríl á þessu ári sem fyrrverandi eiginkona hans til tuttugu og átta ára, Tish Cyrus, sótti um skilnað.

Billy Ray og Tish Cyrus sækja um skilnað í þriðja skiptið

Foreldrar Miley Cyrus þau Billy Ray og Tish hafa sótt um skilnað eftir tuttugu og átta ára hjónaband. Hjónin hafa tvisvar sinnum áður sótt um skilnað en ákveðið í framhaldinu að halda sambandinu áfram og gerðist það síðast árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.