Dusty stendur í harðri toppbaráttu í deildinni og þar sem Þórsarar töpuðu fyrr um kvöldið var Dusty eina liðið sem gat jafnað Atlantic að stigum á toppnum.
Wanker krækti í hnífalotuna fyrir Breiðablik sem hóf leikinn í vörn. Dusty hafði hins vegar betur í fyrstu tveimur lotunum en þar sem Blikarnir áttu ekki í miklum vandræðum með að aftengja sprengjurnar komst liðið fljótlega yfir í 5–3. Minnti upphaf leiksins því óneitanlega á leik Dusty á undanförnum tímabilum þar sem liðið gat verið lengi í gang gegn auðveldari andstæðingum.
Fyrri hálfleikur var því afar jafn þar sem Breiðabliki tókst að skapa sér góð færi en B0ndi, StebbiC0C0 og EddezeNNN svöruðu af krafti.
Staðan í hálfleik: Dusty 8 – 7 Breiðablik
Allt annað var að sjá Dusty í síðari hálfleik þegar liðið var komið í vörn. Þreföld fella frá B0nda tryggði Dusty skammbyssulotuna sem EddezeNNN fylgdi eftir með ás í þeirri næstu. Leikmenn Breiðabliks gerðu sitt besta til að halda í við Dusty og tefja þá snemma í lotum en allt kom fyrir ekki.
EddezeNNN og B0ndi voru með langflestar fellur á meðan TH0R gerði ekki mikinn skaða með vappanum. Það gerði ekkert til því EddezeNNN og B0ndi báru liðið uppi með ótrúlegum og fjölmörgum fellum. Í 26. lotu rauf B0ndi 30-fellu múrinn og StebbiC0C0 rak smiðshöggið á sigurinn í þeirri næstu.
Lokastaða: Dusty 16 – 10 Breiðablik
Eftir leikinn er Dusty í öðru sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Atlantic en einungis markatalan greinir liðin að á þessum tímapunkti.
Næstu leikir liðanna:
- Viðstöðu – Dusty, þriðjudaginn 6/12, kl. 19:30
- Ármann – Breiðablik, fimmtudaginn 8/12, kl. 20:30
Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.