Bílar

Jagúar á Englandi gefur annan frían ef England vinnur HM

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Jaguar XE, Jaguar F-Type og Jaguar XF og allir fallegir bílar.
Jaguar XE, Jaguar F-Type og Jaguar XF og allir fallegir bílar.

Breski bílaframleiðandinn Jagúar tilkynnti í gær að allir viðskiptavinir sem kaupa bíl núna fái annan frían með ef England verður heimsmeistari í knattspyrnu karla.

Sölutölur Jagúar í Bretlandi hafa verið á niðurleið og nú ætlar Jagúar að nýta sér mögulegan framgang enska landsliðsins á HM í Katar.

Meðfylgjandi er myndband úr verksmiðju Jagúar á Englandi, af YouTube-rásinni YouCar.

„Jagúar er heimsklassa lúxus bílaframleiðandi sem er þekkt fyrir að smíða eftirsóttustu bílana í hverjum stærðarflokki, þannig að fólk fer dáist raunverulega að þeim og fer svo og kaupir BMW, Audi eða Mercedes-Benz,“ sagði heimildarmaður TopGear sem er innanbúðarmaður hjá Jagúar. „Við urðum að gera eitthvað stórt og þetta nýja plan er sennilega ein skilvirkasta leiðin sem við gátum hugsað upp til að bókstaflega tvöfalda sölutölur ársins.

„Með augu heimsins á einum stærsta viðburði heimsins og liðið okkar er að standa sig frekar vel, þá þótti þetta viðeigandi stuðningsyfirlýsing. Ekki klúðra þessu England,“ bætti heimildarmaðurinn við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×