Árshátíðir í útlöndum styrkja starfsmannahópinn Tripical 7. desember 2022 14:50 Barcelona tekur vel á móti gestum með töfrandi arkitektúr og sól. „Við finnum fyrir miklum ferðaspenningi. Það er bókað hjá okkur allar helgar í haust og fram á næsta ár. Fólk þyrstir í ferðalög og nú er akkúrat tíminn til að skipuleggja ferðir fyrir haustið 2023,“ segir Viktor Hagalín Magnason, sölu og markaðsstjóri ferðaskrifstofunnar Tripical. Tripical skipuleggur árshátíðaferðir til útlanda fyrir allar stærðir hópa. Viktor segir ferðir sem þessar skapi ógleymanlegar minningar og þjappi hópnum saman. Mikil eftirspurn sé eftir starfsmannaferðum, stjórnendur fyrirtækja vilja verðlauna sitt fólk og styrkja tengslin. „Andrúmsloftið á vinnustaðnum verður jákvæðara við það að skipta um umhverfi og Tripical setur saman draumaferðir starfsmanna. Við förum oft á óhefðbundna staði og getum útfært ferðirnar algjörlega eftir óskum. Við höfum meðal annars leigt kastala undir árshátíð,“ segir Viktor. Það létti mjög á starfsmannafélaginu og skemmtinefnd að Tripical sjái um ferðirnar frá A til Ö. „Starfsfólk Tripical býr yfir mikilli reynslu og heldur vel utan um alla þætti svo allur hópurinn getur notið ferðarinnar. Hóparnir geta verið frá 30 til 1000 manns og við leigjum flugvélar undir hópinn ef ekki er áætlunarflug á áfangastaðinn. Oft láta fyrirtæki merkja vélarnar sérstaklega og bjóða upp á eitthvað skemmtilegt í fluginu. Þá er mjög vinsælt að einhver glaðningur bíði starfsfólksins þegar komið er upp á hótelherbergin. Svítulottóið er einnig mjög vinsælt en þá halda fyrirtækin bingó á vinnustaðnum fyrir ferðina og heppnir starfsmenn geta unnið uppfærslu í svítu. Við bjóðum einnig upp á skemmtitékka og þá getur hópurinn valið skemmtikraft sem kemur með í ferðina og heldur uppi fjörinu,“ segir Viktor. Hér má fletta í gegnum spennandi valkosti árhátíðaferða hjá Tripical: ARSH__net Vinsælustu áfangastaðir Tripical: Dubrovnik í suðurhluta Króatíu Mörg atriði Game of Thrones voru tekin upp í hinni heillandi Dubrovnik Borgin er sannkölluð perla Adríahafsins og þekkt fyrir gamla miðbæinn þar sem er að finna allt að 800 gamlar kapellur og kastala. Þessi fallega borg er vinsæl tökustaður í kvikmyndaheiminum og voru meðal annars atriði sem gerast í King´s Landing, höfuðborginni úr sjónvarpsseríunni Game of Thrones tekin upp í Dubrovnik. Fjöldi spennandi veitingastaða er að finna í borginni og gaman að ganga um ævafornar göturnar. Bilbao Bilbao er þekkt fyrir einstaka matarmenningu. Bilbao er ein áhugaverðustu borgum Spánar. Hún er einstök blanda af gamla tímanum og nútímanum, rólegheitum og líflegri borgarstemmingu. Hjarta borgarinnar slær í gamla bænum þar sem er að finna minjar allt frá 11. öld. Bilbao er þekkt fyrir einstaka matarmenningu og er fjöldi Michelin stjörnustaða með því mesta í heiminum. Bilbao er einnig mikil menningarborg og þar er meðal annars að finna stórbrotinn arkitektúr. Barcelona Sagrada Família er ein þekktasta kirkja Evrópu. Saga Barcelona teygir sig allt til Rómarveldis og á hverju götuhorni eru fallegar byggingar. Sumar hverjar eiga engan sinn líka í heiminum eins og hinn stórbrotna kirkja Sagrada Família. Hægt er að rekja sig í gegnum aldirnar með göngutúr um götur Barcelona og afslappað viðhorf borgarbúa vindur ofan af íslenska stressinu. Riga Heilsulindir eru eitt af aðalsmerkjum Riga borgar. Riga, höfuðborg Lettlands er afar falleg borg og hefur yfir sér rólegt yfirbragð en undir niðri kraumar líflegt mannlíf. Riga er mikil dekurborg og Þar er hægt að gera sérstaklega vel við sig í mat og drykk. Heilsilindir eru einnig eitt af aðalsmerkjum borgarinnar og þar er hægt að heimsækja klassísk lettnesk baðhús og bjórböð. Allar nánari upplýsingar um spennandi árshátíðaferðir er að finna hér. Einnig er hægt að hafa samband á hallo@tripical.is og í síma 5198900. Ferðalög Mannauðsmál Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Neytendur Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira
Allar nánari upplýsingar um spennandi árshátíðaferðir er að finna hér. Einnig er hægt að hafa samband á hallo@tripical.is og í síma 5198900.
Ferðalög Mannauðsmál Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Atvinnulíf Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Samstarf Vilja þvinga Google til að selja Chrome Viðskipti erlent Gæðin að batna og nóg af klementínum eftir helgi Neytendur Máttu ekki fullyrða að eldsneytið væri kolefnisjafnað Neytendur Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun Viðskipti innlent Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Atvinnulíf Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Viðskipti innlent Opna verslanir í Kringlunni á ný Viðskipti innlent Rekstur fríhafnarinnar seldur úr landi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný útgáfa af konungi jeppans kominn til landsins Þola gluggarnir þínir íslenskt veðurfar? Greiðsluáskorun Eini sjö sæta rafbíllinn frá Peugot Snjallsímar tróna enn á toppnum í jólakönnun ELKO Frumsýning á Audi Q6 e-tron lúxussportjeppanum Stöðluðu húsin frá Límtré Vírneti hafa slegið í gegn Hvernig verður steypa græn? Land Cruiser 250: Frumsýning á laugardag Jólagjöf sem hefur slegið í gegn - Dineout gjafabréf Krafturinn keyrir alla skynsemi á kaf - Polestar 4 reynsluakstur Á Hrafnistu vinna öll að sama markmiði Slepptu biðröðinni og bókaðu dekkjaskiptin á nesdekk.is Hvað gefa vinnustaðir í jólagjöf? Fyrirtækjagjafir á Vísi Met mæting í Klinkuboð Ert þú á leið í framkvæmdir og veist ekki hvar þú átt að byrja? Októberfest í Bílheimum á laugardaginn Spennandi tækifæri í Mosfellsbæ Sjá meira