Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Kristján Már Unnarsson skrifar 7. desember 2022 16:20 Síðasta Boeing 747-þotan dregin úr flugvélaverksmiðjunni í Everett í gærkvöldi. Húsið telst það stærsta í heimi að rúmmáli. Boeing/Paul Weatherman Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári.
Þar með lýkur smíði þessarar fyrstu breiðþotu heims sem jafnframt var sú fyrsta með farþegarými á tveimur hæðum. Framleiðsla hennar hófst árið 1967 og hafa alls 1.574 eintök verið smíðuð. „Í meira en hálfa öld hafa tugþúsundir dyggra starfsmanna Boeing hannað og smíðað þessa stórkostlegu flugvél sem hefur sannarlega breytt heiminum. Við erum stolt af því að þessi vél muni halda áfram að fljúga um allan heim um ókomin ár," er haft eftir Kim Smith, varaforseta Boeing og framleiðslustjóra 747 og 767-vélanna í fréttatilkynningu Boeing. Síðasta eintakið, númer 1.574, yfirgefur framleiðslugólfið.Boeing/Paul Weatherman Þotan olli straumhvörfum í flugsamgöngum þegar Pan Am, fyrst flugfélaga, tók hana í notkun árið 1970. Hún er talin hafa átt einn stærsta þátt í því að flugfargjöld lækkuðu og að flugferðir milli heimsálfa urðu á færi almennings á Vesturlöndum. Fyrstu gerðirnar voru sjötíu metra langar með sextíu metra vænghaf og gátu tekið yfir 400 farþega, fleiri en nokkur önnur flugvélartegund. Síðasta gerðin er 76 metra löng og getur hún borið allt að 133 tonna farm en farflughraði hennar er um 900 kílómetrar á klukkustund. Flugfélög hafa almennt verið að hætta notkun hennar til farþegaflutninga á undanförnum árum. Þar hefur þessi fjögurra hreyfla þota vikið fyrir mun hagkvæmari tveggja hreyfla breiðþotum, eins og Boeing 777 og Airbus A350. Líkan af Boeing 747 í litum Loftleiða á borði framkvæmdastjórnar Flugleiða eftir að Loftleiðir og Flugfélag Íslands sameinuðust árið 1973. Til ársins 1976 voru þrír forstjórar, þeir Sigurður Helgason, Örn Ó. Johnson og Alfreð Elíasson, sem sjást við borðsendann.Skjáskot/Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Af íslenskum flugfélögum hefur Air Atlanta verið stærsti flugrekandi Boeing 747. Litlu munaði að Loftleiðir keyptu tvær vélar árið 1972 og Flugleiðir notuðu eina slíka í pílagrímaflugi um skamma hríð árið 1982. Þá hefur Cargolux, sem Loftleiðamenn tóku þátt í að stofna árið 1970, verið leiðandi í notkun Boeing 747 til fraktflutninga og er núna með þrjátíu í rekstri.
Boeing Fréttir af flugi Tímamót Bandaríkin Air Atlanta Tengdar fréttir Air Atlanta sendir þrjár júmbó-þotur í niðurrif Forsvarsmenn Flugfélagsins Air Atlanta hafa ákveðið að láta rífa þrjár af sjö Boeing 747-400 farþegaþotum félagsins. Þoturnar eru á bilinu 18 til 23 ára gamlar og hafa að undanförnu verið í þjónustu Saudia-flugfélagsins, ríkisflugfélags Sádi-Arabíu. 18. október 2020 23:01 British Airways leggur júmbó-þotunni Breska flugfélagið British Airways hefur ákveðið að leggja öllum Boeing 747 júmbó þotum sínum. Til þessa hefur ekkert annað flugfélag í heiminum notað jafnmargar júmbó þotur í flugáætlun sinni 17. júlí 2020 08:26 Kvöddu 747 á sérstakan máta Ísraelska flugfélagið El Al kvaddi flota sinn af Boeing 747 vélum á sérstakan máta í gær. 4. nóvember 2019 10:20 Í beinni: Mjaldrarnir fluttir til Heimaeyjar Reiknað er með því að flugvélin með mjaldrana tvo sem eru á leið til Vestmannaeyja lendi á Keflavíkurflugvelli á allra næstu mínútum. 19. júní 2019 13:35 Fimmtíu ár frá fyrsta flugi júmbó-þotunnar Flugheimurinn fagnar því um helgina að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta flugi Boeing 747 risaþotunnar, fyrstu breiðþotu heims. Júmbó-þotan olli straumhvörfum í flugsamgöngum. 10. febrúar 2019 19:45 Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30 Mest lesið Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Viðskipti erlent Áföstu tapparnir stóðust ekki gæðapróf Neytendur „Það er verið að ríkisvæða húsnæðismarkaðinn“ Viðskipti innlent Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Viðskipti erlent Leiguverð heldur áfram að hækka Viðskipti innlent Umferðarofsi stofnar vegfarendum í hættu Samstarf Leggja upp laupana í Lundúnum Viðskipti innlent Níu holu golfvöllur á gamalli landnámsjörð Samstarf Fasteignakaup fjárfesta vísbending um að fasteignaverð haldi áfram að hækka Viðskipti innlent Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Fleiri fréttir Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Kjarnorkubréf Einsteins til sölu Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Lætur mál gegn OpenAI niður falla Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar ChatGPT og endurbætt Siri væntanlegar nýjungar Apple Lækkuðu stýrivexti í Evrópu í fyrsta sinn síðan 2019 Írskur matsölustaður hafði betur í vörumerkjadeilum við McDonalds Bein útsending: Fjórða flugferð Starship Prufa að neyða notendur til að horfa á auglýsingar Vangaveltur um að vinkona Ásdísar hafi verið myrt og hent í sjóinn Sjá meira
Air Atlanta sendir þrjár júmbó-þotur í niðurrif Forsvarsmenn Flugfélagsins Air Atlanta hafa ákveðið að láta rífa þrjár af sjö Boeing 747-400 farþegaþotum félagsins. Þoturnar eru á bilinu 18 til 23 ára gamlar og hafa að undanförnu verið í þjónustu Saudia-flugfélagsins, ríkisflugfélags Sádi-Arabíu. 18. október 2020 23:01
British Airways leggur júmbó-þotunni Breska flugfélagið British Airways hefur ákveðið að leggja öllum Boeing 747 júmbó þotum sínum. Til þessa hefur ekkert annað flugfélag í heiminum notað jafnmargar júmbó þotur í flugáætlun sinni 17. júlí 2020 08:26
Kvöddu 747 á sérstakan máta Ísraelska flugfélagið El Al kvaddi flota sinn af Boeing 747 vélum á sérstakan máta í gær. 4. nóvember 2019 10:20
Í beinni: Mjaldrarnir fluttir til Heimaeyjar Reiknað er með því að flugvélin með mjaldrana tvo sem eru á leið til Vestmannaeyja lendi á Keflavíkurflugvelli á allra næstu mínútum. 19. júní 2019 13:35
Fimmtíu ár frá fyrsta flugi júmbó-þotunnar Flugheimurinn fagnar því um helgina að fimmtíu ár eru liðin frá fyrsta flugi Boeing 747 risaþotunnar, fyrstu breiðþotu heims. Júmbó-þotan olli straumhvörfum í flugsamgöngum. 10. febrúar 2019 19:45
Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30