Sport

Dagskráin í dag: Stórleikur í Olís-deildinni, Seinni bylgjan og Gametíví

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Stjarnan tekur á móti FH í Olís-deild karla í handbolta í kvöld.
Stjarnan tekur á móti FH í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

Sportrásir Stöðvar 2 bjóða upp á þrjár beinar útsendingar á þessum fína mánudegi, en þar ber hæst að nefna viðureign Stjörnunnar og FH í Olís-deild karla í handbolta.

Stjarnan tekur á móti FH klukkan 19:15 á Stöð 2 Sport, en liðin ætla sér bæði sigur áður en Olís-deildin fer í langt jóla- og HM-frí. Stjörnumenn sitja í sjötta sæti deildarinnar með 13 stig, fimm stigum á eftir FH sem situr í öðru sæti.

Að leik loknum tekur Seinni bylgjan svo við þar sem Stefán Árni Pálsson fær til sín sérfræðinga í settið og fer yfir allt það helsta úr liðinni umferð í Olís-deildinni.

Þá verða strákarnir í Gametíví á sínum stað með sinn vikulega þátt á Stöð 2 eSport klukkan 20:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×