Viðskipti innlent

Ólafur Karl nýr fram­kvæmda­stjóri Marel Fish

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Ólafur Karl Sigurðsson tekur við af Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur.
Ólafur Karl Sigurðsson tekur við af Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur. Aðsent, Hanna Andrésdóttir/Vísir

Ólafur Karl Sigurðsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Marel Fish. Hann tekur við af Guðbjörgu Heiðu Guðmundsdóttur sem yfirgefur nú Marel og tekur við sem forstjóri tryggingafélagsins Varðar. 

Ólafur hefur gengt hinum ýmsu hlutverkum innan Marel síðan hann hóf störf hjá fyrirtækinu árið 2015. Áður en hann tók við framkvæmdastjórastöðu starfaði hann sem forstöðumaður nýsköpunar hjá Marel Fish.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að Ólafur muni í nýju starfi bera ábyrgð á stefnu Marel Fish og hraða nýsköpun og sjálfvirkni enn frekar. Ásamt því sjái hann um að efla stöðu fyrirtækisins og tryggja stöðu þess í leiðandi stöðu á hinum ýmsu sviðum.

Ólafur er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Í tilkynningunni er haft eftir Árna Sigurðssyni, aðstoðarforstjóra Marel þar sem hann segist ánægður að fá Ólaf í nýtt starf.

„Ólafur hefur sýnt framúrskarandi leiðtogahæfileika hjá Marel og vaxið með hverri áskorun. Ég er þess fullviss að hann verði farsæll í þeim verkefnum sem fram undan eru. Um leið vil ég þakka Guðbjörgu innilega fyrir verðmætt framlag í þágu Marel í gegnum árin og óska henni alls hins besta á nýjum vettvangi,” segir Árni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×