Leðurbuxur, hringur í nef og nafla og permanent en toppnum náð á fermingadaginn Rakel Sveinsdóttir skrifar 17. desember 2022 10:01 Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir myndlistarkona fannst hún vera rosalega töff í tískunni þegar hún var unglingur. Og tók þá tísku líka alla leið. Allt frá permanenti í leðurbuxur með hring í nef og nafla. En toppnum náði hún á sjálfan fermingardaginn í skræpóttum sixties bol, skærgrænum skokk, appelsínugulum sokkabuxum og með sixtiees greiðslu. Vísir/Vilhelm Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir myndlistarkona og kennari viðurkennir að hafa farið alla leið í tískunni sem unglingur. Permanent tólf ára, hringur í nefið og rakaði af sér hárið einhverjum árum síðar. Í unglingatískunni segist hún samt hafa toppað sjálfan sig á fermingardaginn.
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir myndlistarkona og kennari viðurkennir að hafa farið alla leið í tískunni sem unglingur. Permanent tólf ára, hringur í nefið og rakaði af sér hárið einhverjum árum síðar. Í unglingatískunni segist hún samt hafa toppað sjálfan sig á fermingardaginn. Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég stilli klukkuna hálf sjö ef ég á að mæta í kennslu en hálf átta eða átta ef ég er að fara á vinnustofuna.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég er rosa mikill nautnaseggur en tek það út frekar á því að drekka kaffi á morgnanna en sofa, því ég þoli ekki að flýta mér út. Finnst æði að geta vaknað aðeins fyrr bara til að hanga ein með sjálfri mér, dóla og drekka kaffi. Bara veit ekkert betra en þessa heilögu stund. Fæ mér alveg nokkra kaffibolla áður en ég nenni að hafa mig til. Og svo allt í einu er maður komin með kaffi adrenalín í kroppinn sem er dásamleg tilfinning og þá getur maður byrjað daginn.“ Nefndu dæmi um hallærislega tísku sem þú fílaðir í tætlur sem unglingur. „Mér fannst ég náttúrulega mjög töff í fatavali þegar ég var unglingur sem er auðvitað fyrir öllu. Fór algjörlega mínar eigin leiðir þar. Á meðan flestar vinkonur mínar voru í pilsum og kjólum þá var ég í leðurbuxum og keypti mér skyrtur, stundum mjög litríkar í Spútnik og í Kolaportinu. Þessi fatnaður var nú smá í stíl við músíkina sem ég hlustaði á. Ég var alls ekki mikð fyrir “píkupoppið” heldur elskaði ég grunge -ið. Já heyrðu, svo rakaði ég af mér allt hárið þegar ég var sautján átján ára, bara svona til að prófa og fékk mér svo hring í nefið og naflann í stíl. En það mætti kannski segja að ég hafi toppað mig á sjálfan fermingardaginn. Þá var ég í skræpóttum sixties bol, skærgrænum skokk, appelsínugulum sokkabuxum og með sixtiees greiðslu, djúpa skiptingu til hliðar, túperaðan hnakka og svo að sjálfsögðu stífmáluð eins og stelpur eru yfirleitt um þrettán fjórtán ára. Sumsé NOT. Við vorum tvær vinkonurnar sem fóru alla leið í stílnum. Maður flissar nú alveg smá yfir þessum myndum í dag. Nú svo má nú líka nefna permanent tímabilið sem var hjá mér aðeins á undan. Ég var um tólf ára þegar ég fékk fyrst permanent. Þegar maður pælir í því þá leyfðu foreldrar börnum sínum allskonar vitleysu á 80’s og 90’s tímabilinu. Það var eitthvað svo mikið frelsi í öllu. Sem er smá fyndið í dag.“ Anna starfar sem myndmenntakennari og myndlistarkona og opnaði sýningu þann 8.síðastliðnum á kaffihúsinu á Mokka, Skólavörðustíg. Hún segir ADHD hliðin sína fá að blómstra í myndlistinni, skrifar alltaf niður fullt af listum sem ADHD hausinn gleymir síðan hvar eru geymdir en vistar í undirmeðvitundinni. Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Ég var að ljúka við að koma upp myndlistasýningu á Mokka. Opnun var bara núna 8. des. Svo að maður er bara svona að ,,lenda” eftir að hafa verið að vinna að henni upp á síðkastið. Þetta er rosalega skemmtilegt ferli sem maður leggur allt sitt hjarta og sál í. Núna er ég í smá spennufalli því að keyrslan hefur verið mikil. Með þessu hefur maður verið að taka þátt í jólasýningu í Portinu og í Listvali og núna akkúrat vinn ég að fleiri verkum sem eru á leiðinni þangað. Með myndlistinni er ég að kenna myndmennt í Hlíðaskóla en þar styttist óðum í jólafrí. Hef ekki haft neinn tíma til að sinna jólaverkunum. Aðventukransinn er til dæmis enn þá einhversstaðar upp á lofti. En mér er frekar mikið sama um svona dauða hluti. Ég vil bara hitta fólkið mitt um jólin , njóta, upplifa og gera eitthvað skemmtilegt.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Er í tveim vinnum, bæði í myndmenntakennslu og svo að vinna að myndlistinni á vinnustofu minni á Hólmaslóðinni. Við samstarfskona mín erum með sameiginlegt skjal þar sem við skipuleggjum okkur. Við gerum prógramm fyrir hvern tíma sem við kennum svo aftur og aftur með nýjum hópum. Myndlistin mín hefur ekki svona línulaga skipulag. Þá fær ADHD hliðin mín að blómstra, sem er náttúrulega æði. En ef það eru sýningar framundan skrifa ég lista hvað ég þarf að gera og hvenær ég þarf að vera búin með hvert atriði. Síðan les ég það auðvitað aldrei þar sem ADHD hausinn á mér man ekki einu sinni hvar ég geymi þessa lista. En með því að skrifa planið nógu oft nær undirmeðvitundin að sjá um heildarmyndina og láta hlutina ganga upp. Reyni að vera staðföst í því sem ég ætla mér að gera.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Ég fer að sofa milli klukkan ellefu og tólf. En finnst geggjað að fara upp í svona klukkutíma fyrr og horfa á Netflix. Finnst gaman að horfa á svona heimildarþætti um allskonar. En svo er maður alltaf að ýta á pásu til að gera eitt og annað því það er erfitt að einbeita sér að einu, síminn, stundum undirbúa kennslu, stundum fær maður hugmyndir í myndlistinni og svo framvegis.“
Kaffispjallið Myndlist Tengdar fréttir Eins og hauslaus hæna í matvörubúð og ekki eldað síðan 2009 Það mátti litlu muna að Guðfinnur Sigurvinsson létist úr næringaskorti í október síðastliðnum. Því þá var hann einn heima í mánuð og svo lélegur er hann í eldamennskuna að málin stóðu tæpt þegar eiginmaðurinn kom loks heim fjarveru vegna vinnu. Guðfinnur er rakari á Rakarastofunni Herramönnum í Kópavogi og bæjarfulltrúi í Garðabæ. Ásamt fleiru. 10. desember 2022 10:00 Fyrsta verk dagsins að þagga niður nöldurvælið í frú Sigríði Jósafínu Brynhildur Ólafsdóttir útiþjálfari og leiðsögumaður segist markvisst vera að temja sér meira kæruleysi. Enda sé það skemmtilegra, afslappaðra og heilbrigðara fyrir taugakerfið. Brynhildur byrjar daginn á að sinna kettinum frú Sigríði Jósefínu sem hefur enga þolinmæði gagnvart eiganda sem fer seint á fætur. 3. desember 2022 10:01 Fréttasjúklingur sem hefur borðað hundahamborgara, hestaheila, lifandi orma og drukkið snákablóð Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og fyrrverandi forseti Heimssamtaka Matreiðslumanna, Klúbbs matreiðslumanna og Kokkablúbbs Norðurlanda, segist í dag fyrst og fremst vera ævintýramaður. Og húsmóðir í Frakklandi. Sem þó er að setja á laggirnar fyrsta kokkalandsliðið í Indlandi. 26. nóvember 2022 10:00 „Það er galið að segja það en ég gæti mögulega drepist úr áhuga“ Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, viðurkennir að hún gæti verið röskari í að koma sér fram úr á morgnana. Andrea er í átaki að fara fyrr upp í rúm á kvöldin en einnig að hætta að segja að það sé „brjálað“ að gera en segja þess í stað að það sé „nóg“ að gera. 19. nóvember 2022 10:00 Væri líklegast uppátækjasamur starfsmaður á plani í Næturvaktinni Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, er í því átaki núna að lesa meira á kvöldin en leggja símann frá sér. Ef hún væri karakter í Næturvaktinni telur hún líklegt að hún væri uppátækjasamur starfsmaður á plani. 12. nóvember 2022 10:01 Mest lesið Þekktir netþrjótar réðust á kerfi Wise Viðskipti innlent Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Atvinnulíf Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar Atvinnulíf Bölvað basl á Bond Viðskipti erlent Baldvin sagði upp 99 manns sem mættu ekki á morgunfund Viðskipti innlent Halda áfram bitcoin-braski þrátt fyrir samkomulag við AGS Viðskipti erlent Standa vörð um bílastæði viðskiptavina Kringlunnar Viðskipti innlent Draga úr rafmyntarvæðingu til að fá lán frá AGS Viðskipti erlent Innkalla sviðasultu vegna gruns um listeríu Neytendur Hærri barnabætur og ný gjöld á nikótínvörur á nýju ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Grýlan sem segir vekjaranum að grjóthalda kjafti Einföld leið til að nýta hugmyndavinnu oftar „Ég spyr: Er í lagi að grípa í rass og þukla á brjóstum?“ Sterkasti fasteignasali landsins: Að verða pabbi breytti öllu „Tek góða bæn, þakka fyrir daginn og sofna á núll einni“ Hittust á stefnumótaappi og blása nú lífi í týndar sögur Skemmtilegir úlpustrákar: Vinir sem urðu viðskipta-vinir „Ég var alveg ákveðin í því að verða bankakona“ Fer í pyntingar með eiginkonunni tvo morgna í viku Bryndís tekur við af Dagmar hjá Austurbrú Ekki brenna út á aðventunni „Hápunktur morgunsins er síðan rómantíski kaffibíltúrinn“ Áhrif kosninga á starfsfólk og vinnustaði í næstu viku „Stelpupabbarnir eru ósjálfrátt betur á verði“ Driffjöður Vertonet: „Við erum að setja kjöt á beinin núna“ Velgengni í New York: „Mér finnst ég ekkert hafa verið hér mjög lengi“ Magga í Pfaff: „Ég man meira að segja hvar fyrsti kossinn var“ Fær nokkuð jákvæð viðbrögð þegar hann vandar sig í eldhúsinu Dagatalsmenningin: Rosa töff að vera með yfirbókaða dagskrá Vogue og forsetafrúin kveiktu strax en íslenski vinnumarkaðurinn með hindranir Inngildingin: „Íslenska töluð með hreim er samt íslenska“ Dæmi: „Tvær konur geta ekki unnið saman því einu sinni áttu þær sama kærasta“ „Unglingsárin voru kannski ekki mín heppilegustu ár“ „Pólitíkin er dugleg í þessu en einkageirinn kann þetta ekki nógu vel“ Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Stærðin skiptir ekki máli Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Allt í steik: Samtalið við yfirmanninn Sjá meira
Eins og hauslaus hæna í matvörubúð og ekki eldað síðan 2009 Það mátti litlu muna að Guðfinnur Sigurvinsson létist úr næringaskorti í október síðastliðnum. Því þá var hann einn heima í mánuð og svo lélegur er hann í eldamennskuna að málin stóðu tæpt þegar eiginmaðurinn kom loks heim fjarveru vegna vinnu. Guðfinnur er rakari á Rakarastofunni Herramönnum í Kópavogi og bæjarfulltrúi í Garðabæ. Ásamt fleiru. 10. desember 2022 10:00
Fyrsta verk dagsins að þagga niður nöldurvælið í frú Sigríði Jósafínu Brynhildur Ólafsdóttir útiþjálfari og leiðsögumaður segist markvisst vera að temja sér meira kæruleysi. Enda sé það skemmtilegra, afslappaðra og heilbrigðara fyrir taugakerfið. Brynhildur byrjar daginn á að sinna kettinum frú Sigríði Jósefínu sem hefur enga þolinmæði gagnvart eiganda sem fer seint á fætur. 3. desember 2022 10:01
Fréttasjúklingur sem hefur borðað hundahamborgara, hestaheila, lifandi orma og drukkið snákablóð Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og fyrrverandi forseti Heimssamtaka Matreiðslumanna, Klúbbs matreiðslumanna og Kokkablúbbs Norðurlanda, segist í dag fyrst og fremst vera ævintýramaður. Og húsmóðir í Frakklandi. Sem þó er að setja á laggirnar fyrsta kokkalandsliðið í Indlandi. 26. nóvember 2022 10:00
„Það er galið að segja það en ég gæti mögulega drepist úr áhuga“ Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu, FKA, viðurkennir að hún gæti verið röskari í að koma sér fram úr á morgnana. Andrea er í átaki að fara fyrr upp í rúm á kvöldin en einnig að hætta að segja að það sé „brjálað“ að gera en segja þess í stað að það sé „nóg“ að gera. 19. nóvember 2022 10:00
Væri líklegast uppátækjasamur starfsmaður á plani í Næturvaktinni Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Eyri Venture Management, er í því átaki núna að lesa meira á kvöldin en leggja símann frá sér. Ef hún væri karakter í Næturvaktinni telur hún líklegt að hún væri uppátækjasamur starfsmaður á plani. 12. nóvember 2022 10:01