Lífið

Clark­s­on for­­dæmdur fyrir viður­­styggi­­leg skrif um Mark­­le

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Jeremy Clarkson er sagður hafa hvatt til ofbeldis gegn konum með skrifunum.
Jeremy Clarkson er sagður hafa hvatt til ofbeldis gegn konum með skrifunum. Getty Images

Þáttastjórnandinn Jeremy Clarkson hefur verið gagnrýndur harðlega fyrir að hafa látið viðurstyggileg orð falla um hertogaynjuna Meghan Markle. Clarkson skrifaði pistil í dagblaðið The Sun þar sem hann sagðist hata hertogaynjuna „óstjórnlega mikið.“

„Þegar ég get ekki sofnað þá gnísti ég saman tönnunum og læt mig dreyma um daginn sem [Markle] verður látin ganga nakin um götur allra bæja í Bretlandi á meðan fólk öskrar „Skammastu þín!“ og kastar saur í hana,“ sagði Clarkson meðal annars í pistlinum.

Hann sagði að allir á hans aldri væru sama sinnis en þáttastjórnandinn varð 62 ára gamall á þessu ári.

Fjölmargir hafa fordæmt orð Clarkson á samfélagsmiðlum, þar á meðal dóttir hans, Emily Clarkson. Hún sagðist vera ósammála öllu sem fram kom í pistlinum og kvaðst standa með þeim sem beittir væru stafrænu ofbeldi.

Grínistinn John Bishop sagði orðin bersýnilega hvetja til ofbeldis gegn konum og leikkonan Kathy Burke sagði að Clarkson væri „andskotans fáviti.“ Guardian greindi frá.

Bishop lét Clarkson heyra það fyrir pistilinn.

Tengdar fréttir

Tímaritið Variety frestar forsíðu Meghan Markle

Variety hefur frestað forsíðu hertogaynjunnar Meghan Markle vegna andláts Elísabetar II drottningar. Meghan var valin ein þeirra kvenna sem skartar miklum kvennakrafti (e. Power of Women). Í kjölfarið átti hún að birtast á forsíðu tímaritsins líkt og hinar konurnar sem voru valdar.

Meghan Markle gerist hlaðvarpsstjarna

Her­togaynjan Meghan Markle hefur ákveðið að stíga inn í hlaðvarpsheiminn með þáttunum sínum Archetypes. Fyrsti viðmælandi hennar er tennisstjarnan Serena Williams sem nýlega tilkynnti að hún væri að fara að setjast í helgan stein eftir stórfenglegan feril.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.