Innlent

Eldur í bíl við Furu­grund

Bjarki Sigurðsson skrifar
Slökkviliðsmenn náðu að slökkva eldinn áður en hann barst í önnur ökutæki.
Slökkviliðsmenn náðu að slökkva eldinn áður en hann barst í önnur ökutæki. Aðsend

Eldur kviknaði í bíl við Furugrund í Kópavogi fyrir skömmu síðan. Aðrir bílar voru í hættu en slökkviliðsmönnum tókst að slökkva eldinn í tæka tíð. 

Sjónarvottur staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir aðra bíla hafa verið í kringum þann bíl sem kviknaði í en tvær dælubílar voru sendir á svæðið til að slökkva eldinn.

Klippa: Eldur í bíl við Furugrund

Ekki er vitað hvernig eldurinn kviknaði. Aðrir innviðir, svo sem íbúðarhúsnæði, voru ekki í hættu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×