Lífið

Jóla­göngu­túrinn tók ó­vænta stefnu þegar María Thelma fékk bón­orð

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
María Thelma og Steinar eru trúlofuð.
María Thelma og Steinar eru trúlofuð. Instagram

Leikkonan María Thelma Smáradóttir og hnefaleikakappinn Steinar Thors eru trúlofuð. Parið var á jólarölti í Hafnarfirði sem tók ansi óvænta stefnu þegar Steinar skellti sér á skeljarnar.

„Af okkur óafvitandi, stóð kona álengdar og festi augnablikið á myndbandi! Við eyddum svo restinni af deginum út um allar trissur þar sem við skáluðum og fögnuðum ástinni,“ skrifar María Thelma á Instagram.

María Thelma útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2016. Síðan þá hefur hún meðal annars leikið í Föngum, Ófærð og kvikmyndinni Arctic þar sem hún lék á móti Mads Mikkelsen. Hún og unnusti hennar, Steinar Thors, byrjuðu saman fyrr á þessu ári.

Steinar hefur getið sér gott orð sem hnefaleikakappi, ásamt því að starfa sem viðskiptastjóri hjá Valitor. Þá hefur hann tekið að sér hin ýmsu hlutverk sem áhættuleikari. Steinar á einn son úr fyrra sambandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.