Lífið

Héldu alvöru partý fyrir góðan mál­stað

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Umboðsstofan Móðurskipið stóð fyrir glæsilegum söfnunarviðburðu nú á dögunum.
Umboðsstofan Móðurskipið stóð fyrir glæsilegum söfnunarviðburðu nú á dögunum. Árni Beinteinn

Umboðsstofan Móðurskipið hélt á dögunum glæsilegan góðgerðarviðburð til styrktar Mæðrastyrksnefnd. Uppistandarinn Jóhann Alfreð stýrði jólabingói ásamt því að gestir gátu tekið lagið í sérstöku jólakaraoke.

Viðburðurinn fór fram á Kex Hostel og gekk eins og í sögu. Allir skemmtikraftar gáfu vinnu sína og fjölmörg fyrirtæki styrktu viðburðinn með glæsilegum vinningum. Alls söfnuðust um fimm hundruð þúsund sem renna beint til Mæðrastyrksnefndar.

Forsagan er sú að þeir Jóhann Alfreð Kristinsson og Valdimar Kristjónsson, betur þekktur sem Valdi Píanó, hafa haldið Jólabingó nær óslitið frá árinu 2012, til styrktar sama málstaðar. Í þetta skipti fengu þeir Móðurskipið umboðsstofu með sér í lið.

„Mæðrastyrksnefnd vinnur auðvitað mikilvægt starf allt árið en sérstaklega fyrir jólin. Ótrúlega gaman að geta styrkt þeirra frábæra starf og haldið partý í leiðinni,“ segir María Hrund Marínósdóttir, framkvæmdarstjóri Móðurskipsins.

Sungu jólalög fyrir pening

Til viðbótar við gamla góða jólabingóið, var haldið jólakaraoke þar sem gestum gafst kostur á að syngja uppáhalds jólalögin sín við undirleik stemningssveitarinnar Jólafínir.

Fyrirkomulagið var þannig að gestir gátu annað hvort boðið sig fram sjálfir og safnað áheitum fyrir söng sinn eða skorað á aðra að syngja fyrir ákveðna fjárupphæð. Aflahæsti jólasöngvari kvöldsins var Bragi Árnason sem safnaði rúmum 40 þúsund krónum fyrir söng sinn.

„Kvöldið sjálft hefði ekki geta gengið betur. Fullt hús og fullt af fólki tilbúið að stíga á svið og syngja,“ segir María.

Hér að neðan má sjá myndir frá kvöldinu.

Uppistandararnir Jóhann Alfreð og Bergur Ebbi stýrðu jólabingói.Árni Beinteinn
Uppistandarinn Bergur Ebbi kom fram á viðburðinum.Árni Beinteinn
Jóhann Alfreð og Valdi Píanó hafa staðið fyrir jólabingói í mörg ár.Árni Beinteinn
Uppistandarinn Ebba Sig tók lagið.Árni Beinteinn
Valdi Píanó var í góðum gír.Árni Beinteinn
Gestir fengu lista yfir hin ýmsu jólalög sem þeir gátu ýmist boðist til þess að flytja sjálfir eða skorað á aðra.árni beinteinn
Fjölmargir mættu til þess að spila bingó.Árni Beinteinn
Leikkonurnar Birna Rún og Aldís Amah létu sig ekki vanta.Árni Beinteinn
Uppistandarinn Andri Ívars tók lagið.Árni Beinteinn
Lilja Jónsdóttir tók lagið.Árni Beinteinn
Birna Rún, Ari Ísfeld, María Hund og Katrín Odds skemmtu sér konunglega.Árni Beinteinn
María Hrund, framkvæmdarstjóri Móðurskipsins og Jóhann Alfreð uppistandari.Árni Beinteinn
Uppistandarinn Snjólaug Lúðvíksdóttir steig á svið.Árni Beinteinn
Gestir voru ánægðir með kvöldið.Árni Beinteinn
15.000 krónur söfnuðust fyrir söng Ebbu Sig.Árni Beinteinn
Mikil stemning myndaðist á Kex Hostel.Árni Beinteinn
Kvöldið heppnaðist afar vel.Árni Beinteinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.