Lífið

Kim Kar­dashian vekur at­hygli í Bjarkarbol

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Kim Kardashian er greinilega Bjarkar aðdáandi eins og svo margir.
Kim Kardashian er greinilega Bjarkar aðdáandi eins og svo margir. instagram

Kim Kardashian er greinilega mikill Bjarkar aðdáandi eins og svo margir, því á dögunum klæddist raunveruleikastjarnan bol með nafni íslensku tónlistarkonunnar.

Nýlega skellti Kim sér á listasýningu með systur sinni Khloé. Birti hún mynd af sér við tilefnið þar sem hún spurði Instagram fylgjendur sína hvað þeim fyndist um hárlit sinn.

Á myndunum var Kim klædd í leðurbuxur, támjóa hæla og túrkís litaðan magabol með áletruninni Björk. Það var fjölmiðlakonan Snærós Sindradóttir sem vakti athygli á þessu á Twitter.

Kim er fyrirmynd margra þegar kemur að klæðaburði og því skal engan undra ef Bjarkar bolir verða það heitasta á nýju ári. Nú á dögunum var Björk útnefnd ein besta söngkona allra tíma af tónlistartímaritinu The Rolling Stones. Sat hún ofar en kanónur á borð við Rihönnu, Bruce Springsteen, Janis Joplin og Bob Marley.

Kim Kardashian hefur verið þekkt fyrir að setja tóninn í tískunni og því skal engan undra ef Bjarkarbolir verða það heitasta á nýju ári.
Stórglæsileg í Bjarkarbol og leðurbuxum.instagram
Systurnar Khloé og Kim skelltu sér á listaviðburð nú á dögunum.instagram


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.