Lífið

Glæsi­hýsi reis úr öskunni eftir elds­voðann í Kalda­seli

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Eldsvoðinn í Kaldaseli vakti mikla athygli á sínum tíma en nú er húsið óþekkjanlegt.
Eldsvoðinn í Kaldaseli vakti mikla athygli á sínum tíma en nú er húsið óþekkjanlegt. Vísir/Vilhelm-Fasteignaljósmyndun

Einbýlishús sem brann til kaldra kola fyrir tveimur árum síðan hefur verið endurbyggt með glæsilegum hætti og leitar nú nýs eiganda.

Eldsvoðinn í Kaldaseli í Seljahverfi í Breiðholti vakti mikla athygli í byrjun árs 2021. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út en húsið var þegar orðið alelda. Húsráðanda tókst að koma sér út en altjón varð á eigninni. 

Nú tveimur árum síðar hefur húsið verið endurbyggt með ótrúlegum hætti og er það til sölu. Húsið hefur verið endurskipulagt, öll lóðin endurnýjuð og bílskúrinn innréttaður sem stúdíóíbúð. Sjálft húsið er rúmir 240 fermetrar og stúdíóíbúðin 28 fermetrar. Húsið er á tveimur hæðum en undir húsinu er svo óútgrafið rými sem býður upp á ýmsa möguleika. Ofan við húsið er rúmgóður pallur með heitum potti.

Á neðri hæð hússins er að finna anddyri, eldhús, borðstofa, arinstofa, tvö barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Á efri hæðinni eru sjónvarpsrými, tvö barnaherbergi og hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi.

Ásett verð er 169,9 milljónir en fasteignamat eignarinnar er 114,9 milljónir.

Hér að neðan má sjá myndir af húsinu en nánari upplýsingar um eignina er hægt að finna á fasteignavef Vísis.

Húsið stendur við Kaldasel 1 í Seljahverfi.Fasteignaljósmyndun
Húsið hefur verið endurnýjað að innan sem utan.Fasteignaljósmyndun
Borðstofa og eldhús eru samliggjandi í opnu rými.Fasteignaljósmyndun
Eldhúsið er með innréttingu frá HTH. Quartz steinn frá Steinprýði er á eldhúsborði og eyju.Fasteignaljósmyndun
Eignin er vel skipulögð.Fasteignaljósmyndun
Gengið er upp glæsilegan bogadreginn stiga með sérsmíðuðu stigahandriði frá Járnsmiðju Óðins.Fasteignaljósmyndun
Húsið er á tveimur hæðum.Fasteignaljósmyndun
Hjónasvítan er með fataherberbergi og rúmgóðu baðherbergi.Fasteignaljósmyndun
Hjónabaðherbergið er með „walk in“ sturtu og frístandandi baðkari.Fasteignaljósmyndun
Rúmgott fataherbergi er innan af hjónasvítunni.Fasteignaljósmyndun
Eitt af barnaherbergjum hússins.Fasteignaljósmyndun
Tvö barnaherbergi eru á efri hæð og tvö á neðri hæð.Fasteignaljósmyndun
Sjónvarpsrými á efri hæð hússins.Fasteignaljósmyndun
Búið er að breyta bílskúrnum í stúdíóíbúð.Fasteignaljósmyndun
Stúdíóíbúðin er 28 fermetrar og vel skipulögð.Fasteignaljósmyndun
Ofan við húsið er rúmgóður pall með heitum potti.Fasteignaljósmyndun






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.