Körfubolti

Enn ein þreföld tvenna hjá Doncic | James nálgast stigametið

Atli Arason skrifar
Varnarmenn Kings réðu ekkert við LeBron James í leik liðanna í nótt.
Varnarmenn Kings réðu ekkert við LeBron James í leik liðanna í nótt. Getty Images

Luka Doncic náði 9. þreföldu tvennu sinni á tímabilinu í sigri Maverics á Pelicans í NBA deildinni í nótt á meðan LeBron James nálgast stigamet Kareem Abdul-Jaabar óðfluga. James átti enn eina frábæra frammistöðuna er Lakers vann tveggja stiga sigur á Kings.

Los Angeles Lakers 136-134 Sacramento Kings

Dennis Schroder tryggði Lakers tveggja stiga sigur á Kings með tveimur stigum af vítalínunni í síðustu sókn Lakers í tveggja stiga sigri liðsins á Sacramento Kings en Schroder gerði alls 27 stig í leiknum. LeBron James var hins vegar allt í öllu í sigri Lakers og endaði stigahæsti leikmaður vallarins. James skoraði 37 stig í leiknum ásamt því að taka 8 fráköst og gefa 7 stoðsendingar. 

Það var enginn sem skoraði fleiri stig en James í þeim leikjum sem fóru fram í nótt. James er nú aðeins 422 stigum frá því að eigna sér stigamet NBA deildarinnar sem Kareem Abdul-Jaabar hefur átt í tæp 34 ár en Abdul-Jaabar skoraði 38.387 stig á sínum tíma. Ef James viðheldur 27,2 stiga meðaltali sínu þá verður hann orðinn stigahæsti leikmaður allra tíma eftir 16 leiki, þann 9. febrúar næstkomandi. 

Var þetta 5. sigurleikur Lakers í röð og 19. sigurinn í deildinni í vetur en liðið er í 12. sæti vesturdeildarinnar. Kings er hins vegar í 5. sæti vestursins með 20 sigurleiki.

New Orleans Pelicans 117-127 Dallas Mavericks

Luka Doncic, leikmaður Mavericks, nældi sér í þrefalda tvennu er hann skoraði 34 stig, tók 10 fráköst og gaf 10 stoðsendingar í 10 stiga sigri Mavericks á Pelicans. Enginn leikmaður vallarins náði fleiri fráköstum, stoðsendingum eða stigum en Doncic í leiknum og var þetta 9. þrefalda tvenna hans á tímabilinu.

Mavericks er nú bara einum sigurleik á eftir Pelicans í vesturhluta NBA deildarinnar, Pelicans er í 3. sæti með 24 sigra en Mavericks eru í því 4. með 23 sigurleiki.

Boston Celtics 121-116 San Antonio Spurs

Celtics heldur toppsæti austurdeildar eftir fimm stiga sigur á Spurs í nótt þökk sé frábærum leik Jayson Tatum og Jaylen Brown, leikmönnum Celtics. Tatum var stigahæstur með 34 stig en Jaylen Brown bætti við öðrum 29 stigum fyrir Celtics. 

Celtics hefur tveggja sigurleikja forskot á Brooklyn Nets í efsta sæti austursins á meðan San Antonio Spurs er í 14. og næst neðsta sæti vesturdeildarinnar.

Orlando Magic 115-101 Golden State Warriors

Meistarar Warriors misstigu sig á heimavelli gegn Magic en gestirnir unnu 14 stiga sigur og var þetta fyrsti sigur Magic á Warriors í meira en 10 ár

Warriors voru án bæði Stephen Curry og Klay Thompson í leiknum. Í þeirra fjarveru var varamaðurinn Anthony Lamb stigahæstur með 26 stig. Hjá Magic var Paolo Banchero með flest stig, alls 25 stig

Warriors er í 9. sæti vesturdeildar með 20 sigurleiki en Magic er á sama tíma í 13. sæti austurdeildar með 15 sigurleiki.

Utah Jazz 118-126 Chicago Bulls

Zach LaVine fór fyrir sínum mönnum í Bulls í átta stiga sigri þeirra á heimavelli gegn Jazz. LaVine gerði alls sex þriggja stiga körfur í leiknum og var stigahæsti leikmaður leiksins með 36 stig. DeMar DeRozan bætti við 35 stigum fyrir Bulls en Lauri Markkanen var stigahæsti leikmaður Jazz með 28 stig. 

Eftir sigurinn er Bulls í 9. sæti austurdeildar með 19 sigurleiki en Jazz er í 10. sæti vesturdeildarinnar eftir 20 sigurleiki. Heildarstöðuna í NBA deildinni má sjá með því að smella hér

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×