Vaxtaálag bankanna hríðféll um meira en hundrað punkta í vikunni
![Erlendir fjárfestar eru byrjaðir að gefa íslenskum bankabréfum gaum á ný.](https://www.visir.is/i/7607E8C4735688201BD6BD2ADA09D757D718438CA85254B19FEFD17D3B277472_713x0.jpg)
Vaxtaálag á útgáfur íslensku bankanna í erlendri mynt lækkaði allverulega í þessari viku á eftirmarkaði, eða um meira en 100 punkta, samhliða kröftugum viðsnúningi á evrópskum skuldabréfamörkuðum. Með lækkandi vaxtaálagi gætu bankarnir átt kost á því að fjármagna sig á töluvert hagstæðari kjörum en þeir hafa gert á síðustu mánuðum.