Eftir það sem margir kalla allt of langan frostkafla má gera ráð fyrir allt að tíu stiga hita á morgun og mikilli rigningu. Asahláku er spáð um allt land og hefur Veðurstofa Íslands gefið út gular viðvaranir sem taka gildi í fyrramálið og vara fram á laugardag. Töluverðri hálku er spáð um land allt og reikna má með hviðum allt að fjörutíu metrum á sekúndu á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli í fyrramálið.

Asahláka, sem verður að teljast orð dagsins, eru snöggleg hlýindi og geta skapað flóðaástand og er fólk því minnt á að huga að niðurföllum svo vatn komist leiðar sinnar og valdi ekki tjóni. Einmitt eins og sést í fréttinni.
Undanfarna daga hafa fulltrúar borgarinnar unnið að því að moka snjó frá niðurföllum í láglendi og hefur hann verið fluttur á Skarfabakka.

„Það sem við erum að gera núna er að við munum manna stöðvarnar okkar. Útstöðvarnar, þannig að við getum brugðist við ef eitthvað ástand kemur upp seinnipartinn á morgun fram á föstudagskvöld og svo aftur á laugardagsmorgun,“ segir Hjalti Jóhannes Guðmundsson, skrifstofustjóri reksturs og umhirðu borgarlandsins.

Hjalti bendir fólki á að hafa samband í gegnum ábendingavef Reykjavíkurborgar ef flóðaástand skapast.
Eiga kerfin okkar að ráða við þetta?
„Já og nei það er bara hannað fyrir eitthvað svona meðaltalsástand þannig ef það koma svona skyndileg flóð, mikil úrkoma á stuttum tíma. Bæði geta verið stífluð niðurföll og svo úrkoma það mikil að kerfin ráða ekki við það og þá er það bara okkar að leysa úr því með handaflinu í raun og veru.“

Hann hvetur fólk til að hafa nærumhverfið í huga, hreinsa frá niðurföllum og láta vita ef flóðaástand skapast.
„Og svo líka bara að fara varlega. Í svona ástandi þá er kannski stundum best að sitja heima og spila lúdó.“
