Lífið

Saga Garðars og Snorri leita leigjanda

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Listaparið Saga Garðars og Snorri Helgason leita að leigjanda í íbúð sína á meðan þau ferðast um Mexíkó.
Listaparið Saga Garðars og Snorri Helgason leita að leigjanda í íbúð sína á meðan þau ferðast um Mexíkó.

Grínistinn Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason hafa auglýst íbúð sína lausa til tímabundinnar útleigu.

Saga og Snorri búa í stórskemmtilegri og listrænni íbúð á Brávallagötu í miðbæ Reykjavíkur, ásamt fjögurra ára gamalli dóttur sinni, Eddu Kristínu.

Saga óskaði eftir leigjanda á Twitter síðu sinni í vikunni. Um er að ræða tímabundna leigu í febrúar og fram í mars. Ástæðan er ferðalag Sögu og Snorra til Mexíkó.

Eins og sjá má á myndum er íbúðin afar lífleg og falleg. Plöntur eru í hverju horni og má því gera ráð fyrir því að leigjandinn þurfi að geta haldið í þeim lífinu á meðan á leigunni stendur.

Í íbúðinni er allt til alls og minnist Saga sérstaklega á píanó, kamínu og fallegt veggfóður.


Tengdar fréttir

Snorri og Saga trúlofuð

Turtildúfurnar Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir tilkynntu um trúlofun nú í hádeginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.