Lífið

Geim­fari giftist í fjórða sinn

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Aldrin og Faur giftu sig í dag.
Aldrin og Faur giftu sig í dag. Twitter/Buzz Aldrin

Geimfarinn Buzz Aldrin hefur nú gift sig í fjórða sinn. Hann gekk í það heilaga með efnaverkfræðingnum Anca Faur. 

Parið gifti sig í dag á 93 ára afmæli Aldrin en Faur er 63 ára og vinnur sem yfirmaður hjá fyrirtæki Buzz, Buzz Aldrin Ventures. Þetta kemur fram í umfjöllun BBC.

Aldrin greindi frá giftingunni á Twitter síðu sinni og segir athöfnina hafa verið afar litla og persónulega og fór hún fram í Los Angeles.

„Á 93 ára afmæli mínu og deginum sem ég mun verða heiðraður af Lifandi goðsögnum í flugi er ég ánægður að geta tilkynnt að ástin mín Dr. Anca Faur og ég höfum gengið í það heilaga. Við vorum gefin saman í lítilli, persónulegri athöfn í Los Angeles og erum jafn spennt og unglingar að hlaupast á brott,“ segir Aldrin á Twitter síðu sinni.

Aldrin öðlaðist frægð sína þegar hann varð einn af fyrstu mönnunum til þess að stíga fæti á tunglið árið 1969.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.