Lífið

Stjörnu­lífið: Þorra­blót, bónda­dagur og bón­orð

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Stjörnulífið er fastur liður á mánudögum á Lífinu á Vísi.
Stjörnulífið er fastur liður á mánudögum á Lífinu á Vísi. Samsett/instagram

Það var nóg um að vera í síðustu viku. Á föstudaginn var bóndadagurinn haldinn hátíðlegur og skelltu margir sér á þorrablót um helgina.

Gleðigjafinn Páll Óskar spilaði á þorrablóti Stjörnunnar.

Sunneva Einars birti sjóðheita mynd af sér og kærastanum í tilefni bóndadagsins.

Söngkonan Jóhanna Guðrún skellti sér í myndatöku til Sögu Sig.

Tónlistarkonan Bríet var glæsileg á föstudagskvöldið í Idolinu. 

Camilla Rut hugsar vel um húðina og leyfir náttúrulegri fegurð sinni að skína.

Helgi Ómars hélt bóndadaginn hátíðlegan með sínum heittelskaða.

Förðunarfræðingurinn Fanney Dóra fékk bónorð í vikunni. Á bóndadaginn birti hún svo dásamlega fallegt myndband af bónorðinu sjálfu sem fékk fólk til þess að tárast.

Tónlistarmaðurinn Aron Can birti handahófskenndar myndir frá síðustu dögum, meðal annars þessa krúttlegu mynd af hundinum sínum.

Birgitta Haukdal var í banastuði í Idolhöllinni.

Bubbi Morthens skellti í speglamynd.

Förðunarfræðingurinn og TikTok stjarnan Embla Wigum nýtur lífsins á Tenerife.

Dansarinn Ástrós Traustadóttir birti sjálfsmynd í tilefni helgarinnar.

„Janúar er ekki alltaf auðveldur mánuður en að umvefja sig með fólkinu sem kona elskar er besta leiðin í gegnum allt - líka janúar,“ skrifar leikkonan Íris Tanja.

Gummi Kíró lætur sig dreyma um að vera í París þessa stundina.

Tískubloggarinn Elísabet Gunnars gaf sniðugt foreldraráð.

Leik- og söngkonan Þórdís Björk er sjóðheit í hlutverki Roxy í söngleiknum Chicago.

TikTok stjarnan Brynhildur Gunnlaugs spókar sig í Los Angeles.

Áslaug Arna birti myndir af skrifstofu sinni í Borgarbyggð.

Hjónin Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson skelltu sér til Japan.

Athafnakonan Sylvía Briem fagnaði bóndadeginum.

Leikkonan Steiney Skúladóttir birti myndir frá tökuferli sketsaþáttanna Kanarí sem fóru í loftið um helgina.

„Ekki bara sjúklega sætur og töffari lífs míns heldur líka með stærsta hjartað, hlýjasta faðminn og með killer dans moves,“ skrifar athafnakonan Brynja Dan um sinn bónda.

Lína Birgitta nýtti lyftuferð í myndatöku.

Saga Sig geislar á meðgöngunni.

Leikkonan Snæfríður Ingvars naut lífsins í Tokyo.

Skemmtikrafturinn Eva Ruza skemmti á þorrablóti í Garðinum ásamt KK og Röggu Gísla.

Tískugyðjan Andrea Magnúsdóttir hlóð batteríin í bústað.

Svala Björgvins tilkynnti að von væri á nýrri tónlist.

Hulda Vigdísardóttir er komin 36 vikur á leið og virðist sultuslök í -18 gráðum.

Katrín Tanja er komin heim til sín eftir Wodapalooza CrossFit mótið í Miami.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.