Íslensku strákarnir skoruðu alls 207 mörk í sex leikjum sem gera 34,5 mörk að meðaltali í leik.
Bjarki Már Elísson tryggði íslenska liðinu metið með tveimur mörkum sínum á lokasekúndum leiksins á móti Brasilíu. Við þau tvö mörk á síðustu 25 sekúndum leiksins fór meðalskorið úr 34,17 mörkum í leik í 34,5 mörk í leik.
Íslenska liðið skoraði þrjátíu mörk í öllum leikjum sínum nema þeim afdrifaríka á móti Ungverjalandi þar sem liðið skoraði aðeins þrjú mörk á síðustu átján mínútum.
Þetta er nýtt markamet hjá Íslandi á HM en gamla metið var frá því í HM í Portúgal 2003.
Íslenska liðið skoraði 308 mörk í 9 leikjum á því heimsmeistaramóti en 55 þeirra komu reyndar í fjörutíu marka sigri á Áströlum í fyrsta leik. Íslenska liðið skoraði 34,2 mörk í leik á heimsmeistaramótinu fyrir tuttugu árum.
Á því móti í Portúgal skoraði liðið bara 31,6 mörk í leik í hinum átta leikjunum.
- Flest mörk í leik hjá Íslandi á heimsmeistaramóti
- 34,5 á HM í Svíþjóð og Póllandi 2023 (Guðmundur Guðmundsson þjálfari)
- 34,2 á HM í Portúgal 2003 (Guðmundur Guðmundsson)
- 33,7 á HM í Þýskalandi 2007 (Alfreð Gíslason)
- 30,8 á HM í Túnis 2005 (Viggó Sigurðsson)
- 30,2 á HM á Spáni 2013 (Aron Kristjánsson)
- 29,6 á HM í Svíþjóð 2011 (Guðmundur Guðmundsson)
- 28,3 á HM í Egyptalandi 2021 (Guðmundur Guðmundsson)