Delluathvarf Stefáns Konráð S. Guðjónsson skrifar 27. janúar 2023 15:00 Í átökum fólks á milli verður atburðarásin stundum furðuleg. Þegar mikið er undir skiptir miklu máli að geta sýnt fram á hvers vegna þitt sjónarmið skiptir máli. Stundum verður kappið of mikið og beinum eða óbeinum blekkingum er beitt, sem verða stundum til fyrir misskilning. Í upplýstu samfélagi er slíkt vanalega leiðrétt jafnharðan. En svo eru skýrar blekkingar sem birtast árum saman, þrátt fyrir að vera ítrekað hraktar á einfaldan hátt. Gott dæmi er röng notkun Eflingar, með Stefán Ólafsson í fararbroddi, á úreltum framfærsluviðmiðum. Krafa Eflingar var: Enginn undir miðgildi Förum fjögur ár aftur í tímann til janúar 2019. Þá stóðu yfir kjaraviðræður og Efling, þá í samfloti með öðru verkafólki í SGS, notaði svokallað „dæmigert framfærsluviðmið“ (einnig kallað dæmigert neysluviðmið) félag- og vinnumarkaðsráðuneytisins sem viðmið um nauðsynlegan framfærslukostnað. Vandamálið er bara að þetta viðmið er á engan hátt slíkur mælikvarði. Þá skrifaði undirritaður grein þar sem var útskýrt að tilgreint viðmið væri nánar tiltekið mælikvarði á miðgildi neyslu í ákveðnum neysluflokkum. Efnislega var því krafan sú að allir búi við framfærslu við miðgildi. Við blasir að eina leiðin til þess sé að tekjur allra séu þær sömu. Um viðmiðið má lesa á vef ráðuneytisins. Krafa Eflingar er enn: Enginn undir miðgildi Fjögur ár eru liðin og enn notar Efling sama gagnslausa mælikvarðann, ásamt vissulega öðrum, til að rökstyðja launahækkanir sinna félagsmanna. Til að gera ítrekaða notkun enn furðulegri hefur viðmiðið ekki verið uppfært í fjögur ár þar sem niðurstaða starfshóps ráðuneytisins árið 2020 var „að ýmsir annmarkar væru á samspili gagna sem notuð eru sem undirlag í útreikningum neysluviðmiða og þeirrar aðferðafræði sem notuð væri. Starfshópurinn komst einnig að þeirri niðurstöðu að það hvernig neysluviðmið eru nýtt í dag færi ekki saman við upprunaleg markmið um notkun þeirra.“ Þess vegna eru viðmiðin til endurskoðunar í ráðuneytinu. Líkt og árið 2019 vekur athygli að notað sé sífellt við „dæmigert viðmið“ en ekki „grunnviðmið“ þegar svo vill til að grunnviðmiðið „gaf vísbendingar um hvað fólk þyrfti að lágmarki til að framfleyta sér“ eins og segir á vef ráðuneytisins. Ef við leiðréttum útreikninga Eflingar, sem birst hafa í sjónvarpsauglýsingum, með viðmiði sem er sannarlega ætlað að mæla einhverskonar lágmarksframfærslu, þá er niðurstaðan ekki neikvæð afkoma upp á 40.000 kr. heldur jákvæð afkoma, afgangur, upp á 112.000 krónur. Hærri tekjur á höfuðborgarsvæðinu=Hærra framfærsluviðmið Miðað við það sem er helst í umræðunni nú, hvort rétt sé að Eflingarfélagar fái meiri launahækkanir en fólk sem vinnur nákvæmlega sömu störf annars staðar á landinu, hefur dæmigerða neysluviðmiðið verið blygðunarlaust notað. Viðmiðið sýnir hærri framfærslukostnað á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Við engu öðru er að búast þar sem tekjur á mann voru 10% hærri á höfuðborgarsvæðinu árið 2019 þegar viðmiðið var síðast uppfært. Þeir sem hafa hærri tekjur neyta meira og því óhjákvæmilegt að dæmigerða neysluviðmiðið verði hærra í hóp þar sem tekjurnar eru hærri. Fyrir utan þetta er ýmislegt í málflutningnum um kostnað af framfærslu eftir landshlutum sem stenst illa skoðun, en það er önnur saga. Sorgleg vinnubrögð fyrrum fræðimanns Staðreyndir málsins eru einfaldar: Þau gögn sem Stefán Ólafsson og Efling leggja til grundvallar því að tekjur dugi ekki til framfærslu segja nákvæmlega ekkert um hvort að tekjur dugi til framfærslu. Ekkert. Margir kannast við að hafa óvart lesið tommur en ekki sentimetra af málbandi. Það er það sem Efling og Stefán eru að gera, nema ítrekað um árabil. Mjög ólíklegt er að það sé óvart. Ekki er hægt að álykta annað en að þessi framganga fyrrum fræðimanns sé sorgleg. Góður fræðimaður í félagsfræði á að kunna að fara með töluleg gögn og ekki leggjast svo lágt að villa ítrekað um fyrir almenningi á mjög skýran hátt. Stefán mætti gjarnan útskýra hvort um sé að ræða þekkingarleysi, misskilning eða vísvitandi blekkingar. Erfitt er að ímynda sér aðrar skýringar. Hingað og ekki lengra Það er svo afar umhugsunarvert að góður málstaður eins og hagsmunavarsla fyrir verkafólk þarfnist blekkinga. Hversu góður er raunverulegur málstaður ef hann þarfnast endurtekinna blekkinga? Snýst barátta Eflingar kannski um eitthvað allt annað en kjör félagsmanna? Nú er mál að linni. Sama hvað fólki finnst um deilur Eflingar og SA, og allt sem að þeim snýr, hljóta allir að vera sammála um að endurteknar blekkingar þurfi að stöðva. Þá fyrst má vonandi hefja uppbyggilega og gagnlega umræðu um framfærslu verkafólks á íslenskum vinnumarkaði. Höfundur er efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Konráð S. Guðjónsson Vinnumarkaður Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Mest lesið Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar