Lögregluaðgerðin, sem bar yfirskriftina „Operation Amarok“, fór fram í Nýju Suður-Wales og lagði lögregla meðal annars hald á ólögleg vopn og fíkniefni. Meðal þeirra sem voru handteknir voru einstaklingar sem höfðu komið sér undan handtökuskipunum og sem höfðu brotið gegn nálgunarbönnum.
Heimilisofbeldi er gríðarstórt vandamál í Ástralíu og sá málaflokkur sem krefst jafnan mestrar athygli og tíma lögreglu. Nú hefur verið mörkuð ný stefna sem gengur út á að fjarlægja brotamenn úr umferð og grípa þannig inn í áður en ofbeldið endar með dauðsfalli.
Sautján voru myrtir í Ástralíu í fyrra í kjölfar heimilisofbeldis.
Einn af hverjum fimm Áströlum eldri en 15 ára segist hafa upplifað líkamlegt eða kynferðislegt ofbeldi á heimili sínu. Flest brot eru framin af körlum gegn konum og Sameinuðu þjóðirnar segja ofbeldi gegn konum í Ástralíu sláandi algengt.