Verðbólga er sem stendur í 9,9 prósentum en Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur að hún sé einhvers staðar við toppinn nú. Það væri mikilvægt í umræðunni að hafa í huga að þrátt fyrir verðbólgu væri því spáð að kaupmáttur héldi áfram að aukast.
„Það sem er hægt að gera er að nýta tímann vel og styðja við langtímahugsun að sígandi lukka sé best. Við tökum ekki meira út í dag sem við þurfum bara að skila síðar því það var ekki innistæða fyrir því. Til þess að það megi takast þarf að ríkja friður á vinnumarkaði og það þarf að vera sátt,“ segir Bjarni í samtali við fréttastofu. „Þar þurfa aðilar að ná samkomulagi sín á milli um réttláta skiptingu þess sem er til skiptanna.“
Bjarni segist þykja miður að þær launahækkanir sem samið hefði verið um gætu ekki verið grundvöllur fyrir vinnumarkaðinn að byggja á.
„Vinnudeilur eru ekki gagnlegar þegar það er svona mikil spenna í hagkerfinu eins og allar þessar tölur sem við erum að tala um sýna. Við erum með gangverk til að greiða úr þessu. Við erum með embætti ríkissáttasemjara og ef menn lenda í ágreiningi þá er það, eins og við sjáum núna, Félagsdóm annars vegar og héraðsdóm hins vegar,“ segir Bjarni.
Til að draga úr líkunum á því að ágreiningur endi á þeim stað sem Efling og SA eru komin á, með dómsmál í héraðsdómi og Félagsdómi, vill hann að vinna verði lögð í að þroska betur íslenska vinnumarkaðsmódelið.
Telur þú að ríkissáttasemjari sé í fullum rétti þegar hann leggur fram miðlunartillöguna?
„Ég held það sé í góðri trú og hann hafi vel fært rök fyrir sínu máli. Nú liggur fyrir að málið fer fyrir dómstóla og við skulum láta þá svara þeirri spurningu. Ég hef enga ástæðu til að draga það í efa að menn séu að vinna vinnuna sína eftir bestu getu og því sem kemur heildinni til góða,“ segir Bjarni