Gengur í hvassviðri eða storm Atli Ísleifsson skrifar 3. febrúar 2023 06:58 Mikil úrkoma er í kortunum. Svona verður staðan klukkan 14 í dag. Veðurstofan Þó að það sé tiltölulega rólegt veður á landinu nú morgunsárið þá varir það ekki lengi. Það mun ganga í suðaustan og sunnan hvassviðri eða storm þegar líður á daginn. Órólegt veður er í kortunum.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að með fylgi úrkoma sem gæti byrjað sem slydda, en fari síðan yfir í rigningu. Það hlýni með sunnanáttinni. Í kvöld og nótt snýst síðan vindur til suðvestanáttar, það verður enn hvasst og það kólnar með éljum. Gular viðvaranir eru í gildi á stærstum hluta landsins í dag. Á höfuðborgarsvæðinu tekur gul viðvörun gildi á hádegi og gildir til klukkan 19. Norðaustantil, suðaustantil og á miðhálendi eru viðvaranir til gildi fram á kvöld. Gular viðvaranir taka gildi víða um land síðar í dag vegna hvassviðris.Veðurstofan Á morgun er útlit fyrir allhvassa suðvestanátt með éljum og hita um og undir frostmarki. Á sunnudag er síðan aftur útlit fyrir sunnan hvassviðri eða storm með talsverðri rigningu og hlýindum. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 13-20 m/s og él, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Á sunnudag: Sunnan hvassviðri eða stormur með talsverðri rigningu og hlýindum, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Á mánudag: Hvöss suðvestanátt með éljum og frystir, en þurrt á Austurlandi. Á þriðjudag: Suðvestan stormur með snjókomu eða slyddu og síðar éljum. Hiti kringum frostmark. Á miðvikudag: Líkur á að lægð fari yfir landið með breytilegri vindátt og hvössum vindi. Víða úrkoma og hiti kringum frostmark. Á fimmtudag: Norðvestan stormur með snjókomu, einkum á norðanverðu landinu. Lægir og úrkomulítið síðdegis.
Veður Mest lesið Stór hópur fullorðins fólks á Íslandi lifir eins og börn Innlent Banaslys á Suðurlandsvegi eftir grjóthrun Innlent Spyr um ábyrgð skólastjóra í stóra skómálinu Innlent Hvetja landsmenn til að búa sig undir neyðarástand Innlent „Hér er verið að saka fólk um alvarlega þætti“ Innlent Menningarslys verði frumvarpið samþykkt Innlent Suðurlandsvegi lokað vegna alvarlegs slyss Innlent Vilja úthýsa einkaþotum og þyrlum Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Sjá meira