Í tilkynningu frá almannavörnum segir að appelsínugul veðurviðvörun taki gildi klukkan 11 í fyrramálið Ströndum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.
„Vegfarendur eru beðnir um að vera ekki á ferðinni að óþörfu á því svæði þar sem veðrið er verst. Miklar líkur eru á að veðrið muni hafa áhrif á samgöngur og líkur á foktjóni eru verulegar,“ segir í tilkynningu.
Samráðsfundur í fyrramálið
Í tilkynningu segir að búið sé að boða til samráðsfundar almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra klukkan 11 í fyrramálið þar sem farið verður yfir stöðuna og viðbragð á þeim svæðum þar sem veðurspá er slæm.
Einnig hafi verið ákveðið að virkja samhæfingarstöð almannavarna klukkan 10 í fyrramálið.
Nauðsynlegt að festa lausamuni
Í tilkynningunni segir að samkvæmt spá Veðurstofu Íslands sé von á sunnan stormi og miklu roki. Búast megi við mjög snörpum og varhugaverðum vindhviðum.
„Varasamt verður fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni og nauðsynlegt er að tryggja lausamuni til að fyrirbyggja foktjón. Fólki [er] bent á að sýna varkárni og fylgjast með veðurspám,“ segir í tilkynningunni.
Að lokum er bent á að á vefnum umferdin.is sé hægt að fylgjast með rauntímaupplýsingum um færð á vegum og á vedur.is sé eins og alltaf hægt að fylgjast með veðrinu.