United ætlar að bjóða yfir hundrað milljónir punda í Osimhen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. febrúar 2023 15:00 Victor Osimhen hefur skorað grimmt fyrir Napoli í vetur. getty/MB Media Manchester United er tilbúið að borga fúlgur fjár fyrir markahæsta leikmann ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Victor Osimhen hefur farið mikinn með Napoli í vetur og skorað sextán mörk í sautján deildarleikjum. Napoli er með þrettán stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar. Frammistaða Osimhens hefur eðlilega vakið athygli, meðal annars United sem er í framherjaleit. Og samkvæmt La Gazzetta dello Sport er United tilbúið að borga riftunarverðið í samningi Nígeríumannsins. Það er 107 milljónir punda og ef United greiðir það verður Osimhen dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar ásamt Enzo Fernández sem Chelsea keypti frá Benfica í síðustu viku. Chelsea hefur líka áhuga á Osimhen sem Napoli keypti frá Lille 2020. Hann hefur alls skorað 45 mörk í 83 leikjum fyrir ítalska félagið. Þá hefur Osimhen skorað fimmtán mörk í 22 leikjum fyrir nígeríska landsliðið. United er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og komið í úrslit deildabikarsins. Næsti leikur liðsins er gegn Leeds United annað kvöld.
Enski boltinn Ítalski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Fleiri fréttir Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Jackson komst upp fyrir Eið Smára Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City „Orð geta ekki lýst því hversu eyðilagður ég er“ Englendingar syrgja mann úr heimsmeistaraliðinu frá 1966 Rice og Calafiori klárir en Crystal Palace verður án Eze Dele Alli ekki í leikformi og farinn frá Everton Áfall bætist við ógöngur Man. City Króatíski metalhausinn á að bjarga málunum „Ekki það góður leikmaður miðað hvað við tölum mikið um hann“ „Höfum við séð tvo markverði spila jafn illa í sama leik?“ Tottenham áfram í undanúrslit eftir sjö marka leik með mörgum mistökum Loks búið að ganga frá sölu Everton Segir að það sé erfiðara að vera þjálfari en forsætisráðherra Hefði viljað að Rashford hefði talað við sig fyrir viðtalið Liverpool og Newcastle áfram í undanúrslitin Gabriel Jesus skaut Arsenal áfram í undanúrslitin Arne Slot viðurkennir að hafa reynt að hafa áhrif á dómarana Chelsea trúir á sakleysi Mudryks Sjá meira