Tónlist

Sam Smith ögrar norminu og er ekki hér til að eignast vini

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Sam Smith situr á Íslenska listanum á FM með lagið I'm Not Here To Make Friends.
Sam Smith situr á Íslenska listanum á FM með lagið I'm Not Here To Make Friends. Axelle/Bauer-Griffin/FilmMagic/Getty

Sam Smith er mætt á Íslenska listann á FM með lagið sitt I’m Not Here To Make Friends. Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda í síðustu viku og situr nú í fjórtánda sæti listans.

Sam Smith gaf nýlega út tónlistarmyndband við lagið sem hefur vakið mikla athygli. Hán ögrar kynjatvíhyggjunni og norminu, skartar ýmsum glæsilegum flíkum, sveiflar sér í kristals ljósakrónum og dansar um fáklætt.

Hér má sjá tónlistarmyndbandið:

Leitar að elskhuga

Í textanum syngur Sam Smith um að hán sé ekki að reyna að eignast vini heldur þurfi hán elskhuga. Myndbandið er með um níu milljón áhorf á Youtube og hefur fengið misjafnar viðtökur áhorfenda. 

Instagram síðan feminist vakti athygli á því á dögunum að ósanngjörn og illkvittin ummæli hafi farið sem eldur um sinu í tengslum við myndbandið. Feminist skrifaði þá að kynþokki sé ekki einungis fyrir þá sem eru grannir og gagnkynhneigðir.

Tónleikaferðalag og Grammy verðlaun

Það er margt um að vera hjá Sam Smith um þessar mundir en ásamt því að vera á leið í tónleikaferðalag vann hán ​til Grammy verðlauna á dögunum ásamt söngkonunni Kim Petras í flokknum Best pop duo fyrir lagið Unholy. Þá var Kim Petras einnig fyrsta trans konan til að hljóta verðlaun í þessum flokki.

Miley á toppnum

Miley Cyrus trónir enn á toppi Íslenska listans á FM með lagið Flowers og Rihanna fylgir í öðru sæti með lagið Lift Me Up, sem hún mun að öllum líkindum flytja í hálfleik Superbowl annað kvöld. 

Söngvakeppnis þátttakandinn Diljá er svo komin í sextánda sætið með lagið Power sem var kynnt inn sem líklegt til vinsælda í síðustu viku.

Lög Íslenska listans:

Íslenski listinn á Spotify:


Tengdar fréttir

Miley Cyrus braut blað í sögu Spotify

Tónlistarkonan Miley Cyrus er mætt á Íslenska listann á FM með lagið sitt Flowers. Lagið var kynnt inn sem líklegt til vinsælda í síðustu viku og er nú komið í 16. sæti listans.

Fékk beinan stuðning frá Spotify

Rapparinn Emmsjé Gauti trónir á toppi Íslenska listans á FM aðra vikuna í röð með ástarlagið Klisja. Í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert var svo tónlistarmaðurinn Magnús Gunn mættur með nýjasta lagið sitt „I’ll Be Alright“ en lagið lenti inn á vinsælum lagalista hjá streymisveitunni Spotify.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.