Lífið

Ri­hanna og A$AP eiga von á öðru barni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Rihanna tilkynnti óléttuna á Ofurskálarsviðinu í gær.
Rihanna tilkynnti óléttuna á Ofurskálarsviðinu í gær. Getty/Ezra Shaw

Netheimar loguðu þegar tónlistarkonan Rihanna steig á svið í hálfleik Ofurskálarinnar í gær. Tónlistarkonan steig síðast á svið fyrir fimm árum síðan og því mikil eftirvænting meðal aðdáenda hennar. Ekki bara það heldur skartaði hún óléttubumbu en aðeins níu mánuðir er síðan frumburður hennar og A$AP Rocky kom í heiminn. 

Hvorki Rihanna né A$AP höfðu tilkynnt að þau ættu von á viðbót við fjölskylduna en samskiptafulltrúi hennar staðfesti óléttuna í kjölfar tónleikanna. 

Þó að samskiptafulltrúinn hafi fundið sig knúinn til að staðfesta fréttirnar fór það eiginlega ekki á milli mála. Rihanna var íklædd níþröngum rauðum leðurbol en var klædd í rauðan samfesting yfir sem var renndur niður svo sást í bumbuna. 

Aðeins níu mánuðir eru síðan fyrsta barn þeirra A$AP kom í heiminn en parið hefur sannarlega haldið í þá stefnu að tryggja friðhelgi einkalífsins og ekki einu sinni tilkynnt nafn drengsins. Vegna þessa og þess hversu langt er um liðið síðan Rihanna bæði steig á svið og gaf út nýja tónlist var mikil eftirvænting eftir tónleikum gærdagsins, eins og mátti sjá á samfélagsmiðlum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.