Alvotech orðið ein stærsta eignin hjá helstu hlutabréfasjóðum landsins
![Helstu hlutabréfasjóðir landsins hafa aukið verulega við stöðu sína í Alvotech eftir nýafstaðið hlutfjárútboð.](https://www.visir.is/i/AF5E7EDC5705ED275F39A7B6C8F8FC997C9E670DEEBF4A6A9211B7AE319E302A_713x0.jpg)
Vægi Alvotech í eignasöfnum stærstu hlutabréfasjóða landsins hefur aukist verulega á fáum vikum samtímis miklum verðhækkunum á gengi bréfa íslenska líftæknilyfjafyrirtækisins og þátttöku sjóðanna í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Úttekt Innherja sýnir að félagið er orðið stærsta eða næststærsta eignin hjá meirihluta sjóðanna.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/ABDBBFBC423EF676A44BBBCB6A1C3B43B31DC3428D257BBCC4C92C85D8C799C6_308x200.jpg)
Íslenskir sjóðir fjárfestu í Alvotech fyrir á fimmta milljarð
Fjögur stærstu íslensku sjóðastýringarfélögin fjárfestu í Alvotech fyrir samtals vel yfir fjóra milljarða króna í aðdraganda þess að líftæknilyfjafyrirtækið var skráð á markað hér heima og í Bandaríkjunum í júní síðastliðnum. Sjóðir opnir almennum fjárfestum í rekstri Íslandssjóða, dótturfélagi Íslandsbanka, voru þar umsvifamestir.