Mikla athygli vakti þegar tilkynnt var í gær að Peter Obi, frambjóðandi Verkamannaflokksins, hafi unnið nauman en óvæntan sigur á Tinubu.
Á vef BBC segir að alls hafi átján verið í framboði til forseta, en ljóst má vera að einungis þrír eiga raunverulegan möguleika á sigri – þeir Tinubu, Obi og Atiku Abubakar, leiðtoga stærsta stjórnarandstöðuflokksins, Lýðræðislega þjóðarflokksins.
Til að tryggja sér forsetaembættið þarf frambjóðandi að ná flestum atkvæðum, auk þess að tryggja sér að minnsta kosti fjórðung atkvæða í 25 af 36 ríkjum Nígeríu. Ekki var einungis verið að kjósa nýjan forseta heldur var einnig verið að kjósa um nýtt þing.
Landskjörstjórn greindi frá því í gær að niðurstöður talningar hafi borist frá um þriðjungi af þeim 176 þúsund kjörstöðum sem voru opnir víðs vegar um land. Þar leiðir Tinubu, Abubakar er með næstflest atkvæði og Obi er þriðji.
Nýr forseti mun taka við embættinu af Muhammadu Buhari sem tók við forsetaembættinu árið 2015. Ýmis vandamál steðja að landinu sem nýr forseti mun þurfa að kljást við, meðal annars ýmsar öryggisógnir, vaxandi atvinnuleysi og slæmur efnahagur.
Hinn 85 ára Olusegun Obasanjo, sem var forseti landsins á árinum 1976 til 1979 og aftur frá 1999 til 2007, er í hópi þeirra sem hafa gagnrýnt framkvæmd kosninganna harðlega. Hann og fjölmargir aðrir hafa bent á að tölvukerfið, sem ætlað er að skila niðurstöðum talningar á réttan stað, hafi ekki virkað sem skyldi. Handtelja þarf öll atkvæði sem tekur langan tíma, og þá hafa ásakanir um kosningasvindl gengið manna á millum.
Eftirlitsmenn á vegum Evrópusambandsins hafa sakað landskjörstjórn um lélega skipulagningu og upplýsingagjöf sem dragi úr tiltrú almennings á ferlinu.
Nígería er fjölmennasta ríki Afríku, en landsmenn telja um 225 milljónir.