Laginu Power er spáð góðu gengi í Söngvakeppninni á laugardaginn. Í skoðanakönnun í Facebook-hópnum Júrónördar er Diljá spáð sigri og situr íslenska útgáfa lagsins í 11. sæti vinsældalista Spotify á Íslandi, efst allra keppenda.
Til þess að leyfa fólki að kynnast Diljá og Pálma betur ákváðu þau að gera fimm hlaðvarpsþætti um ferlið. Fyrsti þátturinn kom út í gær og kemur nýr þáttur út á hverjum degi fram að keppni.
Í samtali við fréttastofu segir Diljá að þættirnir fjalli um þau tvö, lagið sjálft og svo ferlið allt.
„Svo líka að mig hefur alltaf langað til að gera podcast. En ég hef ekki fundið alveg um hvað mínir þættir ættu að vera svo kom Pálmi með þessa hugmynd og þá hugsaði ég að þetta væri of gott til þess að gera það ekki. Og leyfa fólki að kynnast okkur aðeins betur,“ segir Diljá.
Skyldu þau vinna keppnina á laugardaginn og keppa í Eurovision fyrir Íslands hönd ætla þau að gefa út einn þátt í viku fram að keppninni og sýna frá því hvernig það er að vera Eurovision-framlag þjóðarinnar.
„Bara leyfa fólki að fylgjast með hvernig þetta er. Maður einhvern veginn veit ekkert, ég veit ekkert hvernig þetta ferli er, hversu mikil vinna þetta er og hvers konar vinna. Þannig bara leyfa fólki að fylgjast með hvernig það er að vera að fara út í Eurovision,“ segir Diljá.
![](https://www.visir.is/i/B445753B620F1230EE5F62392DF5F28DBB8288BE4766094795CEBE6AE9FDD1B8_713x0.jpg)
Hún segir viðtökurnar hafa verið frábærar. Nýlega var hún merkt í myndband á Instagram hjá svæfingalækni í Mexíkó sem var að hlusta á lagið hennar á meðan aðgerð var í gangi.
„Þetta er það ruglaðasta myndband sem ég hef fengið sent á ævi minni. En mér fannst það bara fáránlega fyndið,“ segir Diljá.
Hún er orðin afar spennt fyrir laugardagskvöldinu og er bjartsýn á að allt gangi vel.
„Eina sem ég hef vald yfir er að gera mitt besta og ég hef góða tilfinningu fyrir því að ég muni gera það,“ segir Diljá.