Fótbolti

Hakimi hafnar ásökunum um nauðgun

Sindri Sverrisson skrifar
Achraf Hakimi var á meðal gesta á verðlaunahófi FIFA rétt eftir að fréttir bárust af því að hann sætti lögreglurannsókn vegna meintrar nauðgunar.
Achraf Hakimi var á meðal gesta á verðlaunahófi FIFA rétt eftir að fréttir bárust af því að hann sætti lögreglurannsókn vegna meintrar nauðgunar. Getty

Marokkóski fótboltamaðurinn Achraf Hakimi, varnarmaður PSG í Frakklandi, hefur vísað á bug ásökunum um nauðgun. Hann er sagður sæta lögreglurannsókn vegna gruns um að hafa nauðgað konu um síðustu helgi.

Samkvæmt frönskum miðlum á borð við Le Parisien munu Hakimi og konan hafa kynnst í gegnum Instagram og ákveðið að hittast, en hann er kvæntur tveggja barna faðir.

Þau munu svo hafa hist á heimili Hakimi í París síðastliðið laugardagskvöld, og daginn eftir leitaði konan til lögreglu.

Lögmaður Hakimi, Fanny Colin, sagði í yfirlýsingu til Le Parisien að leikmaðurinn hefði ekki gert neitt rangt:

„Ásakanirnar eru falskar. Hann er rólegur og í höndum réttarkerfisins,“ sagði Colin.

Ekkert hefur heyrst frá PSG vegna málsins en fréttir af því tóku að berast á mánudag, aðeins örfáum klukkustundum áður en Hakimi mætti á verðlaunahóf FIFA þar sem besta knattspyrnufólk ársins 2022 var heiðrað. Þar var Hakimi valinn í úrvalslið ársins.

AFP hefur einnig leitað eftir viðbrögðum frá lögreglu sem vill ekki tjá sig um málið.

Hakimi, sem er 24 ára gamall, var hluti af marokkóska landsliðinu sem sló í gegn á HM í Katar í desember og náði 4. sæti. Hann hefur spilað 61 landsleik og skorað átta mörk. Hakimi gekk í raðir PSG árið 2021 eftir að hafa einnig spilað fyrir Real Madrid, Dortmund og Inter.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×