Lífið

Kourt­n­ey Kar­dashian frum­sýnir ljósa lokka

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Kourtney Kardashian er orðin ljóshærð.
Kourtney Kardashian er orðin ljóshærð. instagram

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er orðin ljóshærð. Hún sýndi nýja hárið á Instagram síðu sinni og vakti það mikla athygli. Ólíkt systrum sínum hefur Kourtney haldið sig við dökka hárið alveg síðan hún steig fyrst fram í sviðsljósið, þar til nú.

Kardashian systur eru dökkhærðar af náttúrunnar hendi og voru þær allar dökkhærðar þegar Kardashian raunveruleikaþættirnir hófu fyrst göngu sína árið 2007. Síðan þá hafa þær Kim og Khloé prófað hina ýmsu hárliti og klippingar og eru tilraunir þeirra löngu hættar að koma á óvart.

Kourtney hefur aftur á móti verið íhaldssamari í þessum efnum og haldið sig við dökka hárið. Hún var lengst af með sítt hár en undanfarin misseri hefur hún skartað svokallaðri bob klippingu sem er afar vinsæl um þessar mundir.

Nú hefur Kourtney tekið breytinguna skrefinu lengra og litað hár sitt alveg ljóst. Á Instagram skrifaði hún að sautján ára Kourtney væri snúin aftur en Kourtney skartaði sambærilegum hárlit þegar hún var táningur.

Á laugardaginn mætti Kourtney á UFC bardaga, ásamt eiginmanni sínum Travis Barker. Þar sýndi hún ljósu lokkana og er óhætt að segja að hún sé stórglæsileg.

Hamingjan skín af þeim Kourtney og Travis sem giftu sig á síðasta ári. Aðdáendur vilja meina að stíll Kourtney hafi tekið miklum breytingum eftir að hún fór að vera með Travis.

Travis er sannkallaður pönk rokkari enda trommari í hljómsveitinni Blink 182. Kourtney og Travis hafa verið saman í rúm tvö ár og á þeim tíma hefur Kourtney óneitanlega þróað með sér pönkaðari stíl en áður.

Kourtney Kardashian sýndi nýja hárið á UFC bardaga nú á dögunum.Getty/Jeff Bottari
Ljóshærð og glæsileg.Getty/Jeff Bottari






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.